Uppgjörið: Fram - KA 1-2 | Færeyingurinn hetjan í Úlfarsárdal Pálmi Þórsson skrifar 29. maí 2025 15:32 Færeyingurinn fljúgandi, Jóan Símun Edmundsson. Vísir/Hulda Margrét
KA fór í frægðarför í Úlfarsárdal í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurmarkið kom í uppbótartíma og það skoraði færeyingurinn fljúgandi, Jóan Símun Edmundsson. Eins og allir leikir hafa verið í Bestu deildinni í sumar þá var þetta mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Með sigri þá gátu KA menn haldið í við hin liðin. Fram áttu möguleika á að horfa aðeins upp fyrir sig en með tapi áttu þeir í hættu með að dragast niður. Fyrri hálfleikurinn fór hægt af stað og var eins og hvorugt lið þorði að gera mistök. Boltinn var mikið við miðjuna og ef hann fór yfir á sóknar þriðjung þá yfirleitt tapaðist boltinn. Um miðbik fyrri hálfleiks fóru margir leikmenn KA að fá högg og leggjast niður og á tímabili voru aðeins 9 KA menn inni á vellinum. Framarar fóru að nýta sér það og stuttu seinna uppskáru þeir mark. Róbert Hauksson renndi boltanum fyrir markið og þar var hann Vuk Dimitrijevic mættur sem stýrði boltanum inn og kom Fram í 1 - 0 eftir 19 mínútna leik. Eftir þetta þurftu KA menn að gera tvær breytingar vegna meiðsla og meðal annars kom Færeyingurinn fljúgandi inn hann Jóan Símun Edmundsson inn á sem átti heldur betur eftir að setja svip sinn á leikinn. Í uppbótatíma fyrri hálfleiks sem er var heilar 12 mínútur kom frábær bolti sem að hann Birgir Baldvinsson tók snyrtilega á kassann inn að endalínu og lagði boltann beint á Ásgeir Sigurgeirsson sem gat ekki annað en klárað færið. Staðan því jöfn þegar gegnið var í búningsklefa. Seinni hálfleikur fór hægt af stað en KA menn fóru að gera sig hægt og rólega líklegri. En það lá hinsvegar ekkert í loftinu og hefði þetta getað farið í báðar áttir. Fram fengu einhver færi sem og KA menn. Þegar um korter var eftir af leiknum var eins og bæði lið voru búin að sætta sig við að fá eitt stig hvor. Það var svo í uppbótatíma þar sem það kemur góður bolti frá Bjarna Aðalsteinssyni og þar dúkkaði upp sá Færeyski hann Jóan Símun Edmundsson og skoraði sigurmark leiksins. Þetta var virkilega mikilvægur sigur fyrir KA menn sem lyftu sér upp úr fallsæti með sigrinum. Atvik leiksins Atvik leiksins er klárlega sigurmarkið sem kom í uppbótatíma. Erfitt að segja það hafi legið í loftinu en heldur ekki hægt að segja það hafi verið gegn gangi leiksins. D ó marar Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var með flautuna og var með fína stjórn á leiknum. Gylfi Már Sigurðsson og Bryngeir Valdimarsson með flöggin og sama hægt að segja um þá. Hreinn Magnússon var 4. dómari en Már Ægisson fékk höfuðhögg beint fyrir framan hann sem hann virðist ekki hafa séð. Annars Fín frammistaða heilt yfir Stemmning Það var fín stemming á Lambhaga vellinum. Fínt veður og vel mætt af fólkinu úr hverfinu sem nýtti frídaginn vel. Stj ö rnur og skú rkar Stjarna leiksins er klárlega sá Færeyski. Ekki bara skoraði hann sigurmarkið heldur breyttist leikur KA manna mikið þegar hann kom inn á. Hann kom bara með það mikil gæði og ró inn á miðjuna. Súrt að fá svona mark í andlitið Rúnar þungt hugsi.vísir/Diego „Má sannarlega segja að þetta hafi verið súrt að fá svona mark í andlitið á síðustu mínútunni. En við áttum þetta skilið. Áttum ekki góðan leik í dag. Við vorum yfir og hefði verið eðlilega sáttur við að ná í stig.” „Það var kannski fyrstu 20 mínúturnar sem það var jafnræði. Kannski við smá yfir en alls ekki mikið. Mér fannst KA liðið gera bara vel að leysa pressuna okkar vel en okkur vantaði bara kraft.” Fram liðið lenti einnig í meiðslum en þó ekki jafn mikið og KA liðið. „Alex sneri sig á ökkla og Már fær bara olnboga í andlitið. Fer upp á spítala með stóra kúlu. Þetta gerist beint fyrir framan nefið á fjórða dómara og ekkert dæmt. Bara leiðinlegt fyrir Már og ef hann er með heilahristing þá er hann sennilega eitthvað frá.” Fram er samt sem áður á fínum stað í deildinni en hefði verið ljúft að ná allavega í stig í dag en hvað fór eiginlega úrskeiðis? „Menn voru að reyna. Það bara heppnaðist ekki nægilega vel.” „Vorum ekki nægilega góðir á boltanum. Leyfðum KA mönnum að pressa okkur og koma okkur í erfiðar stöður sem við náum ekki að leysa. Eitthvað sem við höfum verið að gera vel fyrr í sumar. Það vantaði bar smá ró á boltann og meiri yfirvegun til að spila í gegnum pressuna og leysa upp pressuna.”
Besta deild karla Fram KA Íslenski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir „Ef menn leggja sig fram og standa sig vel þá er alltaf stutt í byrjunarliðið” Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var eðlilega sáttur með dramatískan sigur sinna manna gegn Fram í 9. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. 29. maí 2025 19:30
„Ef menn leggja sig fram og standa sig vel þá er alltaf stutt í byrjunarliðið” Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var eðlilega sáttur með dramatískan sigur sinna manna gegn Fram í 9. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. 29. maí 2025 19:30
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn