Vilja vekja athygli á „grafalvarlegri stöðu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. apríl 2025 18:00 Nemendafélag Kvikmyndaskólans hélt neyðarfund á dögunum vegna stöðu mála. Aðsend Einstaklingar sem komið hafa að Kvikmyndaskóla Íslands keppast um að senda mennta- og barnamálaráðherra opin bréf þar sem tillaga ráðherrans um að nemendur fái inn hjá Tækniskólanum er harðlega gagnrýnd. Nemendur í Kvikmyndaskólanum sendu opið bréf í dag þar sem þau vilja leggja áherslu á „grafaralvarlegra stöðu“ skólans. Kvikmyndaskóli Íslands er gjaldþrota og hafa kennarar starfað launalaust í tvo mánuði til að halda skólanum gangandi. Mennta- og barnamálaráðuneytið kom með þá lausn að nemendur fengju inn hjá Tækniskólanum til að þeir gætu lokið námi sínu. „Barátta okkar snýst fyrst og fremst um að tryggja áframhaldandi gæði náms. Samróma vilji okkar er að skólinn haldi áfram í núverandi formi og að auki skuli hlotnast viðurkenning fyrir það nám sem okkur er kennt. Háskólaráðuneyti hefur nú þegar viðurkennt námið sem háskólanám. Við köllum eftir því að þitt ráðuneyti geri það líka,“ segir í bréfi nemendanna. „Við viljum að þetta haldi áfram að vera Kvikmyndaskóli Íslands hjá okkur og þessi lausn sem var komin með Rafmennt, að hún verði skoðuð,“ segir Katrín Eir Ásgeirsdóttir, forseti Kínema, í samtali við fréttastofu í gær. Lögð er áhersla á hve mikilvægt þekkingarsamfélag skólinn er í opna bréfinu auk mikilvægi námsins sem stuðlar að aukinni kvikmyndagerð hérlendis. „Við bendum á að við erum partur af mikilvægu þekkingarsamfélagi sem má ekki hverfa á einni helgi að illa ígrunduðu ráði. Hér eru einfaldlega of mikil verðmæti í húfi,“ skrifa nemendurnir. Tillagan um að nemendur eigi að færa sig yfir í Tækniskólann og samhliða því eigi að þróa kvikmyndagerðarbraut í skólanum vekur ekki upp tilhlökkun meðal nemendanna. „Við viljum meina að ný tillaga sé fljótræði að hálfu ráðuneytis og ráðherra. Það verður þungur róður fyrir framleiðslufyrirtæki sem reiða sig á að fá nemendur úr skólanum við gerð sinna verkefna þar sem margar af stærstu kvikmyndum í heimi eru teknar upp hér á landi,“ stendur í bréfi nemenda. „Við minnum á að framtíð nemenda og íslensk kvikmyndagerð er í húfi.“ Galdra eigi fram kvikmyndanám Örn Pálmason, fyrrum stjórnarmaður Kvikmyndaskóla Íslands lagði einnig orð í belg um málið í skoðanagrein sem birt var á Vísi. „Ráðuneytið þitt hefur stöðvað yfirfærslu skólans til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og vill koma í veg fyrir að sú vinna og fjármunir sem hafa verið lagðir í yfirfærslu KVÍ á háskólastig geti gefið af sér góða stofnun. Hvað liggur að baki að bjóða háskólanemum í Tækniskólans sem er annars frábær skóli? Á að galdra fram kvikmyndanám þar á nokkrum dögum,“ skrifar Örn. „Við erum að tala um mikla meira en gjaldþrota rekstrarfélag eða bara einhvern einkaskóla í niðrandi merkingu,“ skrifar Örn og vitnar þar í orð Guðmundar Inga Kristinssonar, mennta- og barnamálaráðherra. Þar segir ráðherrann að staða skólans sé við engan að sakast nema þau sjálf. Hér má lesa bréf nemendanna í heild sinni. Opið bréf til mennta og barnamálaráðherra: Ákall frá áhyggjufullum nemendum Kvikmyndaskóla Íslands Hæstvirtur ráðherra, Við nemendur í kvikmyndagerð við Kvikmyndaskóla Íslands viljum með þessu bréfi vekja athygli á grafalvarlegri stöðu sem við stöndum nú frammi fyrir. Barátta okkar snýst fyrst og fremst um að tryggja áframhaldandi gæði náms. Samróma vilji okkar er að skólinn haldi áfram í núverandi formi og að auki skuli hlotnast viðurkenning fyrir það nám sem okkur er kennt. Háskólaráðuneyti hefur nú þegar viðurkennt námið sem háskólanám. Við köllum eftir því að þitt ráðuneyti geri það líka. Við virðumst föst í svartholi óvissu og á milli ráðuneyta, en það er kjarninn og orsakavaldur stöðunnar sem nú er uppi. Við bendum á að við erum partur af mikilvægu þekkingarsamfélagi sem má ekki hverfa á einni helgi að illa ígrunduðu ráði. Hér eru einfaldlega of mikil verðmæti í húfi. Nemendur hvetja ráðherra að vinna að viðeigandi lausn í samráði við nemendur þar sem staðreyndir og þekking ráða vegferð, en ekki fljótfærni. Þegar þetta bréf er skrifað hafa nemendur ekki heyrt frá neinum innan ráðuneytis né Tækniskólanum sem nú er lagt til að leiði okkar nám. Við óskum eftir ykkar liðsstyrk í okkar baráttu að viðhalda gæðum á náminu og um leið koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri. Það er ekki hægt að flokka skóla sem rekstrarfélag. Um er að ræða þekkingarstofnun í fremsta flokki sem hefur tekið áratugi að byggja upp. Enginn er að fara fram á að gjaldþrota félagi verði bjargað. Í okkar samfélagi er ekki óvild í garð einstaklinga né annarra stofnana. Við viljum fá viðeigandi lausn í okkar máli og að umræða sé byggð á staðreyndum og þekkingu á málefni. Íslenskur kvikmyndaiðnaður er í dag öflugt fyrirbæri og langstærsti menningariðnaðurinn sem ekki ætti að vanmeta. Hann skilar nú milljörðum árlega í þjóðarbú landsmanna sem annars væri vandfundið fé. Iðnaðurinn er atvinnuskapandi og bætir landkynningu á ómetanlega vegu. Við munum leiða iðnaðinn sem forverar okkar, fyrrverandi nemendur skólans standa nú fyrir. Núverandi og fyrrverandi nemendur skólans eru gangandi vitnisburður um afurð þess sem skólinn hefur skilað til samfélagsins. Það er ekki hægt að senda læknanema í lögfræði, en sú samlíking er okkar upplifun á tilfærslu Kvikmyndaskóla Íslands í Tækniskólann. Við köllum eftir því að sú tillaga verði endurskoðuð. Jafnframt ber að geta að mál okkar snýst ekki um hvort við viljum valkost A eða B í framhalds- eða tækniskólum landsins. Við vekjum athygli á að grafalvarleg mistök eru í uppsiglingu á ykkar vakt og nauðsyn þess að málið fái viðeigandi meðferð þegar í stað. Það er á ábyrgð stjórnvalda að halda utan um íslenskt menntakerfi og tryggja velferð námsmanna og að tryggja aðgang að hæfu námi eftir þörfum og eftirspurn. Hjá okkur er þörf, hjá okkur er ákall og hér er formleg beiðni um að á okkur sé hlustað. Staðan, eins og hún er verður annars að okkar banameini. Það er þörf á kunnáttu sem við lærum hér og eftirspurn á náminu fyrir vaxandi iðngrein. Það vekur undrun okkar hvernig farið er með okkar hóp. Við höfum horft upp á brottfall í vetur, þar sem nemendur eru neyddir til að snúa á vinnumarkað, þótt þeir óski þess eins að halda áfram í náminu. Það er sárt að horfa upp á en við vitum jú öll að það þarf salt í grautinn. Þá eru nemendur að kosta sig sjálfir í skólann, 1,2 milljónir í skólagjöld á ári, allan framleiðslukostnað myndanna þeirra sem gerðar eru á hverri önn og síðan má ekki gleyma almennu uppihaldi. Það er gífurlegur kostnaður. Fæst okkar eru fædd með silfurskeið í munni. Því er mikil blóðtaka fyrir okkur að fá ekki lánshæfi og aftur vitnum við í svartholið sem orsakavald þess. Við viljum meina að ný tillaga sé fljótræði að hálfu ráðuneytis og ráðherra. Það verður þungur róður fyrir framleiðslufyrirtæki sem reiða sig á að fá nemendur úr skólanum við gerð sinna verkefna þar sem margar af stærstu kvikmyndum í heimi eru teknar upp hér á landi. Nú er eitt slíkt handan við hornið. Það er algjör þversögn að veita kvikmyndaframleiðendum skattaafslátt en drepa niður þá sem eiga að vinna þau verk. Erlenda deildin okkar er síðan annað stórt mál. Fólk víðsvegar að úr heiminum kemur hingað til að læra kvikmyndagerð, borga tvöföld skólagjöld og finnst frábært að fá þetta tækifæri. Ísland og kvikmyndagerð er nefnilega orðið stórt á alþjóðlegum vettvangi, það er því furða að stjórnvöld sjái þetta ekki. Margir nemendur eru með eina, jafnvel tvær háskólagráður. Þetta er raunverulegt þekkingarsetur. Hér er hæfasta fólk bransans að kenna út frá ástríðu, allt frá óskarstilnefndum aðilum yfir í þaullærða kennara með doktorsgráður. Ekki er hér um “einhvern einkaskóla” að ræða. Hér hafa safnast saman verðmæti úr mörgum áttum sem ekki verða metin til fjár, og skal ekki dæma af léttúð. Áratuga grasrótastarf sem nú er leitt af launalausum kennurum með hugsjón. Og við nemendur fylgjum þeim. Við minnum á að framtíð nemenda og íslensk kvikmyndagerð er í húfi. Virðingarfyllst, Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands. Skóla- og menntamál Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Málefni Kvikmyndaskóla Íslands Mest lesið Öll áhöfnin talin af Erlent Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Innlent „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Innlent Fólk komi rautt í framan eins og humar Innlent Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Innlent Þetta fær Hildur í laun Innlent Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Innlent Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Innlent Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Innlent Fleiri fréttir Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Plastbarkadómi áfrýjað og hvalavinir ósáttir við ráðherra Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Tveir í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamáli „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sjá meira
Opið bréf til mennta og barnamálaráðherra: Ákall frá áhyggjufullum nemendum Kvikmyndaskóla Íslands Hæstvirtur ráðherra, Við nemendur í kvikmyndagerð við Kvikmyndaskóla Íslands viljum með þessu bréfi vekja athygli á grafalvarlegri stöðu sem við stöndum nú frammi fyrir. Barátta okkar snýst fyrst og fremst um að tryggja áframhaldandi gæði náms. Samróma vilji okkar er að skólinn haldi áfram í núverandi formi og að auki skuli hlotnast viðurkenning fyrir það nám sem okkur er kennt. Háskólaráðuneyti hefur nú þegar viðurkennt námið sem háskólanám. Við köllum eftir því að þitt ráðuneyti geri það líka. Við virðumst föst í svartholi óvissu og á milli ráðuneyta, en það er kjarninn og orsakavaldur stöðunnar sem nú er uppi. Við bendum á að við erum partur af mikilvægu þekkingarsamfélagi sem má ekki hverfa á einni helgi að illa ígrunduðu ráði. Hér eru einfaldlega of mikil verðmæti í húfi. Nemendur hvetja ráðherra að vinna að viðeigandi lausn í samráði við nemendur þar sem staðreyndir og þekking ráða vegferð, en ekki fljótfærni. Þegar þetta bréf er skrifað hafa nemendur ekki heyrt frá neinum innan ráðuneytis né Tækniskólanum sem nú er lagt til að leiði okkar nám. Við óskum eftir ykkar liðsstyrk í okkar baráttu að viðhalda gæðum á náminu og um leið koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri. Það er ekki hægt að flokka skóla sem rekstrarfélag. Um er að ræða þekkingarstofnun í fremsta flokki sem hefur tekið áratugi að byggja upp. Enginn er að fara fram á að gjaldþrota félagi verði bjargað. Í okkar samfélagi er ekki óvild í garð einstaklinga né annarra stofnana. Við viljum fá viðeigandi lausn í okkar máli og að umræða sé byggð á staðreyndum og þekkingu á málefni. Íslenskur kvikmyndaiðnaður er í dag öflugt fyrirbæri og langstærsti menningariðnaðurinn sem ekki ætti að vanmeta. Hann skilar nú milljörðum árlega í þjóðarbú landsmanna sem annars væri vandfundið fé. Iðnaðurinn er atvinnuskapandi og bætir landkynningu á ómetanlega vegu. Við munum leiða iðnaðinn sem forverar okkar, fyrrverandi nemendur skólans standa nú fyrir. Núverandi og fyrrverandi nemendur skólans eru gangandi vitnisburður um afurð þess sem skólinn hefur skilað til samfélagsins. Það er ekki hægt að senda læknanema í lögfræði, en sú samlíking er okkar upplifun á tilfærslu Kvikmyndaskóla Íslands í Tækniskólann. Við köllum eftir því að sú tillaga verði endurskoðuð. Jafnframt ber að geta að mál okkar snýst ekki um hvort við viljum valkost A eða B í framhalds- eða tækniskólum landsins. Við vekjum athygli á að grafalvarleg mistök eru í uppsiglingu á ykkar vakt og nauðsyn þess að málið fái viðeigandi meðferð þegar í stað. Það er á ábyrgð stjórnvalda að halda utan um íslenskt menntakerfi og tryggja velferð námsmanna og að tryggja aðgang að hæfu námi eftir þörfum og eftirspurn. Hjá okkur er þörf, hjá okkur er ákall og hér er formleg beiðni um að á okkur sé hlustað. Staðan, eins og hún er verður annars að okkar banameini. Það er þörf á kunnáttu sem við lærum hér og eftirspurn á náminu fyrir vaxandi iðngrein. Það vekur undrun okkar hvernig farið er með okkar hóp. Við höfum horft upp á brottfall í vetur, þar sem nemendur eru neyddir til að snúa á vinnumarkað, þótt þeir óski þess eins að halda áfram í náminu. Það er sárt að horfa upp á en við vitum jú öll að það þarf salt í grautinn. Þá eru nemendur að kosta sig sjálfir í skólann, 1,2 milljónir í skólagjöld á ári, allan framleiðslukostnað myndanna þeirra sem gerðar eru á hverri önn og síðan má ekki gleyma almennu uppihaldi. Það er gífurlegur kostnaður. Fæst okkar eru fædd með silfurskeið í munni. Því er mikil blóðtaka fyrir okkur að fá ekki lánshæfi og aftur vitnum við í svartholið sem orsakavald þess. Við viljum meina að ný tillaga sé fljótræði að hálfu ráðuneytis og ráðherra. Það verður þungur róður fyrir framleiðslufyrirtæki sem reiða sig á að fá nemendur úr skólanum við gerð sinna verkefna þar sem margar af stærstu kvikmyndum í heimi eru teknar upp hér á landi. Nú er eitt slíkt handan við hornið. Það er algjör þversögn að veita kvikmyndaframleiðendum skattaafslátt en drepa niður þá sem eiga að vinna þau verk. Erlenda deildin okkar er síðan annað stórt mál. Fólk víðsvegar að úr heiminum kemur hingað til að læra kvikmyndagerð, borga tvöföld skólagjöld og finnst frábært að fá þetta tækifæri. Ísland og kvikmyndagerð er nefnilega orðið stórt á alþjóðlegum vettvangi, það er því furða að stjórnvöld sjái þetta ekki. Margir nemendur eru með eina, jafnvel tvær háskólagráður. Þetta er raunverulegt þekkingarsetur. Hér er hæfasta fólk bransans að kenna út frá ástríðu, allt frá óskarstilnefndum aðilum yfir í þaullærða kennara með doktorsgráður. Ekki er hér um “einhvern einkaskóla” að ræða. Hér hafa safnast saman verðmæti úr mörgum áttum sem ekki verða metin til fjár, og skal ekki dæma af léttúð. Áratuga grasrótastarf sem nú er leitt af launalausum kennurum með hugsjón. Og við nemendur fylgjum þeim. Við minnum á að framtíð nemenda og íslensk kvikmyndagerð er í húfi. Virðingarfyllst, Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands.
Skóla- og menntamál Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Málefni Kvikmyndaskóla Íslands Mest lesið Öll áhöfnin talin af Erlent Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Innlent „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Innlent Fólk komi rautt í framan eins og humar Innlent Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Innlent Þetta fær Hildur í laun Innlent Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Innlent Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Innlent Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Innlent Fleiri fréttir Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Plastbarkadómi áfrýjað og hvalavinir ósáttir við ráðherra Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Tveir í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamáli „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sjá meira