„Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 28. desember 2024 12:34 Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins í nóvember 2022. Síðan þá hefur enginn fundur verið haldinn. Vísir/Vilhelm Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýbreytni ef vont veður yrði notað sem ástæða til að fresta landsfundi. Leiðtogi eldri sjálfstæðismanna segir tíma formannsins liðinn og að umræða um frestun fundarins beri einkenni baktjaldamakks.
Vísir greindi frá því í gær að formenn málefnanefnda Sjálfstæðisflokksins hefðu til skoðunar að fresta landsfundi, sem fyrirhugaður er um mánaðamótin febrúar/mars. Haft var eftir Jens Garðari Helgasyni, formanni atvinnuveganefndar flokksins, að brugðið gæti til beggja vona með veðurfar á þessum árstíma. Ef fundinum yrði frestað yrði það líklega fram á haust. Síðasti landsfundur flokksins fór fram í nóvember 2022, en landsfundur á að jafnaði að fara fram annað hvert ár, samkvæmt lögum flokksins. Leiðtoga öldunganna nóg boðið Formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna segir fréttirnar koma illa við sig, sér í lagi vegna þess að flokkurinn fékk sína verstu niðurstöðu í sögunni í alþingiskosningunum í nóvember. „Þetta er náttúrulega ótækt vegna þess að það þarf að fara fram uppgjör í flokknum,“ segir Bessí Jóhannsdóttir, formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna. Formenn málefnanefnda hafi ekkert um það að segja hvenær landsfundur fari fram, heldur sé það miðstjórnar að ákveða slíkt. Möguleikinn á vondu veðri í lok febrúar sé ótrúverðug ástæða til frestunar að hennar mati. Allra veðra von hafi verið þegar Bjarni Benediktsson formaður flokksins boðaði til Alþingiskosninga í lok nóvember. Síst sé von á verra veðri í lok febrúar heldur en þá. Bessí telur tíma Bjarna formanns liðinn. „Veðrið skiptir engu máli. Við erum vön að leysa þau mál hér á Íslandi. Þetta er bara venjulegur fyrirsláttur.“ Hvað heldurðu þá að búi þarna að baki þessum mögulegu áformum? „Ég held að það búi að baki að verið sé að huga að því bak við tjöldin hverjir eigi að taka við og hvernig flokkurinn eigi að líta út á komandi misserum. Þetta er dæmigert baktjaldamakk.“ Bessí skal þó ekki segja um hverjir standi að baki hinu meinta baktjaldamakki. „Hins vegar er ég þeirrar skoðunar að tími Bjarna sé liðinn og þegar hann kveður loks upp um það að hann ætli að hætta, þá munu ýmsir gefa kost á sér. Síðan er það landsfundarfulltrúa að velja hver verður næsti formaður. Það er ekki klíku innan flokksins að ákveða það,“ segir Bessí. „Ekki heyrt þessu slengt fram fyrr“ Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður flokksins tekur í sama streng og segir fréttirnar koma sér á óvart. „Ég sé enga ástæðu til þess að fresta landsfundi. Það hefur sjaldan verið eins mikilvægt fyrir Sjálfstæðismenn að koma saman, ekki síst í kjölfar úrslita nýafstaðinna kosninga sem voru auðvitað vonbrigði fyrir okkur,“segir Diljá. Diljá Mist telur enga ástæðu til að fresta landsfundi.Vísir/Vilhelm Hún telji það nýbreytni að möguleiki á vondu veðri sé nefndur sem ástæða. „Ég hef ekki heyrt þessu slengt fram fyrr.“ Hún þekki ekki til málsins af öðru en því sem komið hafi fram í fjölmiðlum. „Þannig að ég átta mig ekki á því hvað býr að baki. Ég legg bara þunga áherslu á að dagsetning landsfundar standi, því það er gríðarlega mikilvægt að við sjálfstæðismenn komum saman.“ Hefur íhugað framboð til forystu Diljá segir fulltrúa sjálfstæðismanna á landsfundi hafa í höndum sér hvernig skipað verði í forystu flokksins. „Það eru ekki formenn málefnanefnda eða forystumenn flokksins sem stýra því.“ Sjálf hafi hún ekki íhugað formannsframboð á komandi landsfundi. „En það eru auðvitað fleiri embætti sem verður kosið um á þessum landsfundi, og ég hef alveg íhugað það.“ Þannig að þú hefur íhugað að fara í varaformanninn eða ritarann? „Já, meðal annars,“ segir Diljá. Óheppilegt að hafa þrjú ár milli funda Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður flokksins, er á meðal þeirra sem greint hefur frá því að skorað hafi verið á hana að bjóða fram krafta sína í embætti formanns, fari svo að Bjarni Benediktsson láti gott heita. Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segist hún ekki telja neina ástæðu til að fresta fundinum, en það sé miðstjórnar að ákveða það. Áslaug Arna er á meðal þeirra sem skorað hefur verið á að bjóða sig fram til formanns, fari svo að Bjarni Benediktsson sækist ekki eftir embættinu áfram.Vísir/Arnar „Honum hefur nú þegar verið frestað og mikilvægt að flokksmenn geti komið saman sem fyrst eftir þessar kosningar til að hefja þá vinnu sem flokkurinn þarf að fara í til að byggja upp trúverðugleika sinn, ná til fleiri landsmanna, undirbúa sveitarstjórnarkosningar og ná meiri árangri í næstu kosningum. Sú vinna má ekki bíða of lengi,“ segir í svari Áslaugar. Hún hafi ekki sérstaka skoðun á nákvæmri dagsetningu, en þætti óheppilegt ef þrjú ár liðu á milli funda. Sú yrði raunin ef fundinum yrði frestað fram á haust. Fólksins í flokknum að ákveða Í samtali við fréttastofu segir Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðisflokksins, að hann hefði heyrt því velt upp hvort frestun gæti borgað sig. „Sjálfstæðisflokkurinn er með kjörnar stofnanir til að taka ákvörðun um þetta. Eins og staðan er í dag þá á landsfundur að fara fram 28. febrúar og ekki verið tekin ákvörðun um neitt annað. Fólkið í flokknum verður bara að taka ákvörðun um það. Nú þurfum við að byggja upp og sækja fram, og við treystum fólkinu í flokknum best til að taka ákvarðanir til þess,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur Árnason er ritari Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm Verði fundi frestað segir hann mikilvægt að góð ástæða að liggja fyrir. „Er það til þess að leyfa fólki að koma betur undirbúið til fundarins, eða gagnast það okkur betur í að byggja flokkinn upp, að fresta fundinum? Það er alltaf mikilvægt að halda landsfund og kalla fólk sem oftast til ráðgjafar fyrir forystu flokksins.“
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Tengdar fréttir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Svo virðist sem ólga ríki meðal Sjálfstæðismanna vegna mögulegrar frestunar landsfundar sem til stóð að yrði haldinn í febrúar. Formanni Varðar og Samtaka eldri Sjálfstæðismanna er brugðið yfir fréttunum og segja þau enga ástæðu til að fresta þegar frestuðum landsfundi. 27. desember 2024 20:07 Veðurstofa Sjálfstæðisflokksins frestar fundi Í gær bárust vægast sagt furðulegar fregnir um að óformlegur hittingur formanna málefndanefnda Sjálfstæðisflokksins hefði að vel ígrunduðu máli komist að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að fresta fyrirhuguðum landsfundi flokksins fram á haust. Þrátt fyrir að hópurinn búa að því er virðist yfir einhverjum leyni/töfragögnum um veðurfar þá sér hann sér ekki fært að deila með okkur hinum hver sé hin fullkomna dagsetning veðurfarslega séð nema bara “líklega bara í haust.” 28. desember 2024 09:31 Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira
Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Svo virðist sem ólga ríki meðal Sjálfstæðismanna vegna mögulegrar frestunar landsfundar sem til stóð að yrði haldinn í febrúar. Formanni Varðar og Samtaka eldri Sjálfstæðismanna er brugðið yfir fréttunum og segja þau enga ástæðu til að fresta þegar frestuðum landsfundi. 27. desember 2024 20:07
Veðurstofa Sjálfstæðisflokksins frestar fundi Í gær bárust vægast sagt furðulegar fregnir um að óformlegur hittingur formanna málefndanefnda Sjálfstæðisflokksins hefði að vel ígrunduðu máli komist að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að fresta fyrirhuguðum landsfundi flokksins fram á haust. Þrátt fyrir að hópurinn búa að því er virðist yfir einhverjum leyni/töfragögnum um veðurfar þá sér hann sér ekki fært að deila með okkur hinum hver sé hin fullkomna dagsetning veðurfarslega séð nema bara “líklega bara í haust.” 28. desember 2024 09:31