Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Samúel Karl Ólason og Kristín Ólafsdóttir skrifa 23. nóvember 2024 12:21 Donald Trump og Russell Vought í Hvíta húsinu árið 2019. AP/Evan Vucci Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, hefur tilnefnt Russell Vought, einn aðalhöfunda hins umdeilda Project 2025, til að leiða fjárlagaskrifstofu forsetaembættisins. Vought gegndi embættinu um tíma í fyrri stjórnartíð Trumps og mun koma til með að forgangsraða fjárveitingum og koma kosningaloforðum Trumps um umfangsmikið afnám reglugerða til framkvæmda.
Eftir að Trump lét af embætti hefur Vought einkum einbeitt sér að smíði áðurnefnds Project 2025, en það er í raun áherslulisti og mögulegur leiðarvísir fyrir ríkisstjórn Trumps sem skrifaður var fyrir samtökin Heritage Foundation. Project 2025 hefur verið lýst sem óskalista öfgafullra, kristinna íhaldsmanna og vakti mikla athygli í aðdraganda forsetakosninganna. Trump neitaði því ítrekað í nýafstaðinni kosningabaráttu sinni að hann tengdist Project 2025 á nokkurn þátt, þó að margir höfundar hins ítarlega óskalista hefðu verið embættismenn í ríkisstjórn hans og aðrir hefur komið að kosningabaráttu hans. Vought skrifaði sérstaklega kafla í Project 2025 um endurbætur og breytingar á rekstri fjárlagaskrifstofunnar. Áður hefur Trump tilnefnt Tom Homan, sem svokallaðan „landamærakeisara“ og Brendan Carr í embætti formanns Fjarskiptastofnunnar Bandaríkjanna (FCC). Báðir komu að því að semja Project 2025. Sjá einnig: Stefnir í slag við samfélagsmiðla og sjónvarpsstöðvar Vought er talinn muna koma að vinnu auðjöfranna Elons Musk og Viveks Ramaswamy, sem hafa tekið að sér að vinna að umfangsmiklum niðurskurði í ríkisrekstri Bandaríkjanna, en vinna þeirra á að vera í samvinnu með fjárlagaskrifstofu forsetaembættisins. Sjá einnig: Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Í tilkynningu um tilnefningu Vought segir Trump hann hafa staðið sig vel í hlutverki sínu þegar Trump var síðasta forseti og vel hafi gengið að fækka reglugerðum. „Russ veit nákvæmlega hvernig á að brjóta upp djúpríkið og vopnvædd stjórnvöld og mun hjálpa við að færa fólkinu sjálfstjón á ný,“ skrifaði Trump. „Myndarmaður“ í fjármálaráðuneytið Næsta ríkisstjórn Trumps er óðum að taka á sig mynd eftir hverja umdeilda útnefninguna á fætur annarri. Greint var frá því seint í gær að hann hygðist tilnefna Scott Bessent, afkastamikinn fjárfesti sem talið er að verði öflugur málsvari fjármálaafla á Wall Street, í embætti fjármálaráðherra. Bessent vann á árum áður fyrir George Soros, sem hægrihreyfingar víða um heim hafa lengi gert að sérstakri grýlu, en hefur þó lengi verið ötull stuðningsmaður Trumps, þó hann hafi ekkert tengst fyrstu ríkisstjórn Trumps, og er náinn bandamaður JD Vance, verðandi varaforseta. Trump lýsti Bessent nýverið sem „einum skarpasta manni Wall Street“ og sagði hann virtan af öllum. Þá sagði Trump einnig að Bessent væri myndarmaður, samkvæmt Wall Street Journal. Bessent hefur sagt að hann hafi ákveðið að stökkva á Trump-lestina, ef svo má segja, þegar hann sá að fréttir af dómsmálum Trumps virtust auka fylgi forsetans fyrrverandi en ekki koma niður á því. Þegar slíkt ætti við um fyrirtæki, væri réttast að fjárfesta í þeim og gerði hann það sama með Trump. Í meiri samskiptum við þingmenn Trump tilkynnti einnig í gærkvöldi að hann ætlaði að tilnefnda Lori Chavez-DeRemar sem atvinnumálaráðherra Bandaríkjanna og að Scott Turner, fyrrverandi fótboltamaður sem kom einnig að síðustu ríkisstjórn Trumps, yrði húsnæðismálaráðherra. Undanfarna daga hefur Trump opinberað fjölmargar tilnefningar í ríkisstjórn sína. Hraðinn hefur verið mun meiri en áður og á tæpum þremur vikum hefur hann tilkynnt í næstum því allar stöður í ríkisstjórninni. Ein af tilnefningum Trumps hefur ekki gengið eftir, enn sem komið er. Fyrrverandi þingmaðurinn Matt Gaetz helltist nýverið úr lestinni. Sjá einnig: Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa samkvæmt frétt Washington Post tekið vel í fráhvarf Gaetz og er Trump og hans fólk sagt í nánar samskiptum við þingmenn um framhaldið á síðustu dögum.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Mest lesið Þúsundir hafi orðið af milljónum Innlent Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Erlent Moskítóflugan lifði kuldakastið af Innlent Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Erlent Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Innlent Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Erlent Níu í lífshættu eftir stunguárásina Erlent Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Innlent Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Innlent Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Erlent Fleiri fréttir Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Drónaumferð við herstöð í Belgíu Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Níu í lífshættu eftir stunguárásina Margir sagðir særðir eftir árás í Cambridge-skíri Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Sjá meira