Áhlaup Úkraínumanna inn í Kúrsk hófst á þriðjudag í síðustu viku en mikil leynd hefur ríkt yfir aðgerðinni og markmiðum hennar. Í fyrstu var talað um að í kringum þúsund úkraínskir hermenn tækju þátt í gagninnrásinni en nú telja hernaðarsérfræðingar að innrásarliðið gæti talið allt að tíu þúsund manns.
Séu fullyrðingar Úkraínumanna um landvinninga sína í Rússlandi á rökum reistar hafa þeir náð jafnmiklu landsvæði í Rússlandi á rúmri viku og rússneski herinn hefur gert í Úkraínu á hálfu ári, samkvæmt útreikningum bandarísku hugveitunnar Stríðsrannsóknastofnunarinnar.
Oleksandr Syrskíj, yfirmaður úkraínska hersins, fullyrti í dag að herinn hefði sótt um einn til tvo kílómetra fram í Kúrsk og tekið fleiri en hundrað rússneska hermenn til fanga. Volodýmýr Selenskíj forseti sagði að skipt yrði á þeim og úkraínskum stríðsföngum.
Rússar hafa gert fjölda árása á Úkraínu frá Kúrsk undanfarna mánuði. Úkraínumenn hafa sagst að á meðal markmiða aðgerðarinnar þar sé að fyrirbyggja slíkar árásir. Í því skyni sagði Syrskíj herforingi að hermenn sínir hefðu grandað Su-34-orrustuþotu sem Rússar hafa notað til þess að varpa svonefndum svifsprengjum á úkraínska hermenn.
Rússneska ríkissjónvarpið fullyrðir aftur á móti að herinn sé að snúa taflinu við í Kúrsk og sýnir myndir af því sem það segir vel heppanaðar árásir á úkraínska herliðið, að sögn Reuters-fréttastofunnar.
Úkraínumenn segja að hersveitirnar í Kúrsk ætli að leyfa brottflutning óbreyttra borgara þaðan og heimila alþjóðlegum mannúðarsamtökum að veita aðstoð þar.

Enn ekki náð vopnum sínum
Þrátt fyrir að Vladímír Pútín Rússlandsforseti hafi heitið því að stökkva innrásarliðinu á flótta telja sérfræðingar að rússneski herinn hafi ekki enn náð vopnum sínum. Innrásin kom rússneskum stjórnvöldum í opna skjöldu.
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í gær að aðgerð Úkraínumanna í Kúrsk hefði skapað raunverulega úlfakreppu fyrir Pútín. Hann vildi ekki tjá sig frekar um aðgerðina á meðan hún er enn í gangi. Bandaríkjastjórn hefur sagt að notkun Úkraínumanna á bandarískum vopnum og búnaði til þess að ráðast inn í Rússland sé réttlætanleg í sjálfsvarnarskyni.
Í svipaðan streng hafa þýsk stjórnvöld tekið og í dag sagði Baiba Braze, utanríkisráðherra Lettlands, að Úkraínumenn hefðu fullan rétt á að nota vopn frá Atlantshafsbandalaginu. Rétturinn til sjálfsvarnar nái einnig til gagnárása.
Stuðningurinn dvínað frá því fólk byrjaði að finna fyrir stríðinu sjálft
Stjórnvöld í Kreml standa nú frammi fyrir vali á milli þess að halda hernaði sínum í Úkraínu áfram af sama krafti eða færa herdeildir aftur yfir landamærin til þess að verja landamærahéröð sín. Það gæti teflt nýlegum árangri þeirra í austanverðri Úkraínu í tvísýnu.
Hátt í tvö hundruð þúsund manns hafa flúið heimili sín í Rússlandi vegna innrásar Úkraínumanna. Í Belgorod, þar sem neyðarástandi hefur nú verið lýst yfir, segir kona við AP-fréttastofuna að stuðningur íbúa við stríðið í Úkraínu hafi dvínað eftir að stríðið barst skyndilega í túnfótinn til þeirra.
„Þegar sprengingar hófust nærri borginni, þegar fólk var að deyja og þegar allt þetta byrjaði að gerast fyrir framan augun á okkur og þegar það hafði áhrif á fólk persónulega hætti það að minnsta kosti að styðja stríðið opinskátt,“ sagði konan sem vildi ekki láta nafns síns getið af öryggisástæðum.
Ríkisstjóri Belgorod segir að íbúðarhús hafi skemmst í dróna- og sprengikúluárásum.