„Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Smári Jökull Jónsson skrifar 8. maí 2024 20:16 Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði frammistöðu Stjörnunnar í kvöld ekki hafa verið góða. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar sagði að hans lið þyrfti meiri tíma til að vera tilbúið í slaginn í Bestu deildinni. Hann sagði leikmenn þurfa að svara fyrir ákveðna hluti á fundi á morgun. „
Byrjunin er náttúrulega skelfileg. Það var einhver taugatitringur og einhver misskilningur sem varð til þess að við byrjum leikinn svona,“ sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir slæmt 5-1 tap gegn Breiðablik í Bestu deild kvenna í kvöld. Stjarnan var lent 3-1 undir eftir stundarfjórðung í leiknum. „Við skynjuðum það úti á vellinum í upphitun að spennustigið var ekki alveg hárrétt og við ræddum það núna eftir leikinn. Það er eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun.“ Síðari hálfleikur var tíðindalítill og sagði Kristján að þar hefðu allavega verið framfarir hjá Stjörnuliðinu síðan í fyrri hálfleiknum. „Þá hreyfðum við okkur réttar í varnarleiknum. Við náðum að útskýra betur fyrir leikmönnum hvernig þær áttu að hreyfa sig í varnarleiknum. Ég held það hafi verið aðalmálið. Síðan fórum við aðeins að berjast um boltann gegn andstæðingnum.“ Hann sagði Blikaliðið einfaldlega vera betra en Stjarnan. „Við vorum að spila við lið sem er betra en við, það er stærsti hlutinn.“ Miklar breytingar voru á liði Stjörnunnar eftir síðasta tímabil og Kristján sagði að liðið þurfti einfaldlega meiri tíma. „Við erum sennilega á pari í stigasöfnun miðað við frammistöðu í leikjunum. Eins og sást á fyrri hálfleiknum þá er liðið ekki alveg tilbúið. Breytingarnar sem hafa orðið á milli ára eru það miklar að það sést töluvert á liðinu. Kannski fengum við bandarísku stelpurnar ekki nógu snemma inn. Við þurfum því miður aðeins meiri tíma til að líta aðeins betur út því á tímabili var þetta ekki gott.“
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira