Innlent

Ný sendiskrif­stofa opnuð í Sí­erra Leóne

Atli Ísleifsson skrifar
Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne. við opnunina í gær.
Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne. við opnunina í gær. Stjr

Ný sendiskrifstofa Íslands í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, var formlega opnuð í gærkvöldi og var sérstök hátíðarmóttaka af því tilefni. Sendinefnd frá Íslandi er í Síerra Leóne um þessar mundir og sóttu Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Logi Einarsson þingmaður, opnunina.

Frá þessu segir á vef utanríkisráðuneytisins. Þar kemur fram að Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne, hafi flutt ávarp og þá hafi Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, og Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, einnig til máls.

Haft er eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra að það skipti máli að nú sé loksins búið að opna sendiskrifstofuna í Freetown formlega en undirbúningur hafi staðið yfir um nokkurt skeið.

„Helstu verkefni skrifstofunnar snúa að þróunarsamvinnu og þar með er Síerra Leóne orðið þriðja samstarfsríki Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu, til viðbótar við Malaví og Úganda. Við viljum gera gagn auk þess að dýpka samstarf við Síerra Leóne og opnun sendiskrifstofunnar í Freetown er mikilvægur áfangi á þeirri vegferð,“ segir Þórdís Kolbrún.

Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, flutti ávarp. Stjr

Hófst árið 2018

Samstarf Íslands og Síerra Leóne í þróunarsamvinnu hófst árið 2018 með svæðaverkefni í fiskimálum í Vestur-Afríku, í samstarfi við Alþjóðabankann og stjórnvöld í landinu. 

„Ísland hefur einnig stutt við uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), og bætt kyn- og frjósemisheilbrigði kvenna og stúlkna í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA).

Fyrirætlunum Íslands um aukna þróunarsamvinnu og opnun sendiráðs hefur verið fagnað af stjórnvöldum, sem og öðrum framlagsríkjum.

Megináhersla í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands er að stuðla að bættum lífskjörum í samstarfsríkjum með því að styðja við áætlanir og viðleitni stjórnvalda við að draga úr fátækt og bæta félagsleg og efnahagsleg lífsskilyrði á þeim svæðum sem Ísland styður. Þróunarsamvinna Íslands í Síerra Leóne er í samræmi við áherslur Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu félagslegra innviða, jafnréttismál og mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu,“ segir á vef utanríkisráðuneytisins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×