Tíska og hönnun

Alltaf með nagla­þjöl en gleymir stundum lyklunum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Berglind, gjarnan kennd við Bosk, er viðmælandi vikunnar í Hvað er í töskunni?
Berglind, gjarnan kennd við Bosk, er viðmælandi vikunnar í Hvað er í töskunni? Grafík/Vísir

Tískuhönnuðurinn Berglind Hlynsdóttir hannar undir nafninu Bosk og hefur vakið athygli fyrir einstakar og litríkar töskur. Það er búið að vera mikið um að vera hjá Berglindi í kringum HönnunarMars og er hún gjarnan með marga bolta á lofti en hún gaf sér tíma til þess að veita lesendum Vísis innsýn í töskuna sína í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Það er ýmislegt sem leynist í töskunni hjá Berglindi eins og sjá má hér:

Það leynist ýmislegt í töskunni hjá Berglindi. Aðsend

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?

Það sem er alltaf í töskunni minni er varasalvi (vel sjúskaður og góður), ilmvatnið mitt, airpods, vítamín sprey, lyklar, góð gleraugu, sundkort og naglaþjöl. 

Oftast inniheldur taskan líka eitthvað saumatengt – núna eru það títuprjónar eftir Hönnunarmars.

Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?

Ekki beint nei en þetta er allt hlutir sem ég gæti ekki farið út án, svo kannski!

Taska úr hönnun Berglindar. Aðsend

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?

Ég rótera lítið í töskunni, en það sem ÆTTI alltaf að vera í töskunni eru lyklarnir mínir svo ég komist inn, hvort sem það er heima eða upp í stúdíó. Þeir gleymast stundum.

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?

Ég elska töskuna mína frá Gælu. Ég var stanslaust með hana en svo bilaði rennilásinn og ég set alltaf á hakann að laga það sem ég á svo nú prýðir hún svefnherbergis vegginn. Falleg sem taska og listaverk.

Taskan er að sögn Berglindar sömuleiðis frábært veggskraut. Aðsend

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?

Eftir langan tíma af óreiðu tjúllast ég og tek til í töskunni, en oftast er hún í ágætis standi.

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?

Ég er oftast með tvær með mér – grænu bosk töskuna mína með öllu mikilvæga dótinu og svo er ég með bútasaums tösku sem mamma gerði handa mér. Hana tek ég með á milli heimilisins og stúdíósins. Þar er tölvan mín, það sem er á prjónunum og oftast eitthvað til að narta í þar sem ég er mikið á ferðinni.

Berglind hannar meðal annars töskur undir nafninu Bosk. Sigurður Erik

Stór eða lítil taska og afhverju?

Ef ég þyrfti að velja á milli þá myndi ég örugglega segja stór, því ég þarf alltaf að dröslast með svo mikið af dóti.


Tengdar fréttir

„Elska að hafa skipulagt kaos“

Fatahönnuðurinn Aníta Hirlekar stendur á tímamótum þar sem hún og kollegi hennar Magnea eru að opna nýja verslun við Hafnartorg. Þær fögnuðu opnuninni með pompi og prakt í gær og hafa síðustu dagar því verið mjög viðburðaríkir en Aníta gaf sér þó tíma til að opna tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Myndavél frá afa algjör fjársjóður

Markaðsstjórinn og tískuskvísan Maja Mist er mikið töskukona og hefur fjárfest í nokkrum hátískutöskum í gegnum tíðina. Hún opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu

Förðunarfræðingurinn og ofurskvísan Kolbrún Anna Vignisdóttir er vanalega alltaf með förðunarnauðsynjavörur í töskunni sinni og klikkar sömuleiðis ekki á því að vera bæði með munnskol og tyggjó. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Forfallin húðumhirðuaðdáandi og sólarvarnarlögga

Listakonan og Andrá skvísan Hulda Katarína Sveinsdóttir er alltaf með skissubók í töskunni sinni ef innblásturinn skyldi koma yfir hana. Hún fær hugmyndir á öllum tímum dagsins og er því vel búin með ýmsa skemmtilega hluti í töskunni sinni.

Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni

Leikkonan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir segist ekki dugleg að halda röð og reglu í töskunni sinni og á það til að týna hlutum, þar með talið töskum. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? og opnar töskuna sína fyrir lesendum Vísis.

Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi

Það er nóg um að vera hjá Manúelu Ósk framkvæmdarstjóra Ungfrú Ísland en hún er dugleg að ferðast vegna starfs síns og er því nauðsynlegt að eiga góða tösku. Manúela Ósk er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? hér á Vísi.  

Er skipulagsfrík og tekur reglulega til í töskunni

Kírópraktorinn og smekkmaðurinn Guðmundur Birgir Pálmason, jafnan þekktur sem Gummi Kíró, leggur mikið upp úr því að halda góðu skipulagi á töskunum sínum. Hann er viðmælandi í liðnum Hvað er í töskunni þinni? 

Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi

Markaðsstjórinn og ofurskvísan Pattra Sriyanonge lifir viðburðaríku lífi og er því mikilvægt fyrir hana að vera alltaf með réttu hlutina í töskunni. Lífið á Vísi tók púlsinn á henni í nýjum föstum lið sem heitir Hvað er í töskunni þinni?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×