Fótbolti

Fara á stærri vél og fjölga miðum til Pól­lands

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stuðningsmenn Íslands virðast ætla að fjölmenna til Wroclaw.
Stuðningsmenn Íslands virðast ætla að fjölmenna til Wroclaw. Getty

Icelandair hefur ákveðið að fjölga sætum í ferð á leik Íslands og Úkraínu í Wroclaw í Póllandi. Það seldist fljótt upp í ferðina en nú eru fleiri miðar komnir í sölu.

Seld voru upp þau 160 sæti sem í boði voru í ferðina á úrslitaleik Íslands og Úkraínu á þriðjudagskvöldið, líkt og greint var frá í morgun. Það seldist hratt upp þar sem ferðin var auglýst á föstudagseftirmiðdegi.

Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Icelandair, staðfestir við Vísi að flugfélagið hafi ákveðið að svara eftirspurninni með því að fljúga með Boeing 757-300 vél sem tekur 225 manns í sæti í stað 160. Því er búið að bæta við 65 sætum en einhver biðlisti hafði myndast og því óljóst hversu mörg sæti eru eftir.

Hægt er að bóka miða hér.

Áhugasamir geta sömuleiðis ferðast á eigin vegum til Wroclaw, og keypt sér miða á leikinn í gegnum Tix.is en miðaverð er aðeins 3.000 krónur. Sú miðasala lokar á miðnætti samkvæmt upplýsingum frá KSÍ.

Ljóst er að einhverjir fara þá leið og á vef KSÍ segir að von sé á hundruðum Íslendinga á leikinn sem skera mun úr um það hvort Ísland komist á EM í Þýskalandi í sumar. 

Íslenski landsliðshópurinn er samankominn til Wroclaw en flaug frá Búdapest í dag. Liðið æfir þar á morgun og leikurinn fer fram á þriðjudagskvöld klukkan 19:45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 26. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×