Vextir og verðbólga farin að bíta verulega á heimili og fyrirtæki Heimir Már Pétursson skrifar 13. mars 2024 19:21 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri drýpur höfði þungt hugsi. Gunnar Jakbobsson varaseðlabankastjóri var einn um að vilja lækka vexti á vaxtaákvörðunardegi í febrúar. Næsti vaxtaákvörðunardagur er á miðvikudag í næstu viku. Stöð 2/Arnar Mikil verðbólga og háir vextir á undanförnum misserum gæti leitt til samdráttar en hagvöxtur á Íslandi hefur snarminnkað á síðustu mánuðum. Seðlabankastjóri segir kjarasamninga hins vegar góð tíðindi, peningastefnan væri að virka og allt væri á réttri leið.
Partýinu sem hófst á lágvaxtatímanum er lokið. Viðvarandi mikil verðbólga og háir vextir eru farin að bíta bæði á fyrirtæki og heimili sem í vaxandi mæli halda að sér höndum í neyslu. „Aðhald peningastefnunnar hefur aukist, væntingar eru um að vextir hafi náð hámarki, hækkandi raunvextir og vaxandi greiðslubyrði hægja á hagkerfinu og mikill fjármagnskostnaður þrengir að rekstri fyrirtækja." Allt eru þetta skilaboð í skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem kynnt var í morgun. Þar segir einnig að: „Hægt hefur á vexti ferðaþjónustunnar, hækkun verðlags á Íslandi hafi áhrif, eldsumbrotin hafa neikvæð áhrif að minnsta kosti tímabundið og afkoma íslensku flugfélaganna hefur versnað.“ Gætum endað í samdrætti Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir verðbólgu og vexti farna að reyna á heimili og fyrirtæki. Ekki væri hægt að útiloka að Íslendingar sigli inn í samdrátt, sem er eitt neikvæðasta orð hagfræðinnar. Ásgeir Jónsson segir nýgerða kjarasamninga góð tíðindi inn í baráttuna gegn verðbólgunni og hugsunin á bakvið þá væri góð.Stöð 2/Arnar „Það er alveg möguleiki. Það hefur verið mjög mikill hagvöxtur á síðustu þremur árum. Nú var Hagstofan að uppfæra tölur. Það var níu prósenta hagvöxtur árið 2022. Sem þýðir að hagkerfið óx um tuttugu prósent á þremur árum. Svo það er viðbúið að það hægi eitthvað á,“ segir Ásgeir. Hagvöxtur hefur snarminnkað á undanförnum mánuðum og verður aðeins 1,9 á þessu ári samkvæmt spá Seðlabankans. Þótt flestir vonist eftir vaxtalækkunum á næstu misserum eru vextir enn háir. Snjóhengja föstu vaxtanna hangir yfir fjórðungi heimila Um 25 prósent heimila eru með ýmist verðtryggð eða óverðtryggð lán á föstum vöxtum til nokkurra ára, sem koma til endurskoðunar á næstu tólf til átján mánuðum með aukinni greiðslubyrði. Hér sést hvernig hlutfall verðtryggðra og óverðtryggðra lána hefur breyst frá upphafi árs 2019 til loka árs 2023.Grafík/Sara Á gulu súlunum á meðfylgjandi mynd sjáum við að meirihluti húsnæðislána var óverðtryggður frá árinu 2019 til 2022. Verðtryggð lán voru greidd upp eins og sést á bláu súlunum. Með hækkandi vöxtum fóru heimilin að breyta lánunum í verðtryggð lán og nýir lántakendur tóku í auknum mæli verðtryggð lán. En heimilin hafa verið hagsýn og dregið stórlega úr neyslu og nýgerðir kjarasamningar ættu að leiða til minni verðbólgu og lækkunar vaxta á næstu mánuðum. Verkalýðshreyfingin segir boltann nú hjá Seðlabankanum. „Það er alveg rétt. Boltinn er hjá okkur. Að ná niður þessari verðbólgu og ná verðstöðugleika. Það er bara sú ábyrgð sem Seðlabankinn mun axla í þessu,“ segir seðlabankastjóri. Vextir farnir að reyna á þanþol heimila og fyrirtækja Seðlabankastjóri og þrír aðrir í peningastefnunefnd ákváðu að halda meginvöxtum bankans óbreyttum hinn 7. febrúar síðast liðinn. Fimmti nefndarmaðurinn, Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, vildi aftur á móti lækka þá úr 9,25 prósentum í 9 prósent. Það mátti heyra á honum á kynningarfundi nefndarinnar í morgun að hann teldi vextina farna reyna á þanþol heimila og fyrirtækja. Ásgeir vill ekki tjá sig mikið um mögulegar vaxtalækkanir en næsti vaxtaákvörðunardagurinn er á miðvikudag í næstu viku. Síðasta spá Seðlabankans gerir hins vegar ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 4,1 prósent í lok þessa árs en hún er nú 6,6 prósent. „Peningastefnan hefur virkað eins og hún á að virka. Það er að segja við erum að sjá þjóðarútgjöld minnka. Við erum að sjá, eins og kemur fram hjá okkur í dag, að lánaeftirspurn hefur minnkað. Fyrirtækin eru ekki að taka lán í sama mæli. Ekki heimilin heldur. Þetta er allt í rétta átt og við erum á réttri leið,“ segir Ásgeir Jónsson.
Seðlabankinn Efnahagsbrot Verðlag Ferðamennska á Íslandi Fjármálafyrirtæki Tengdar fréttir Seðlabankastjóri grípur boltann frá verkalýðshreyfingunni Seðlabankastjóri segir nýgerða kjarasamninga góð tíðindi og hugsunin í samningunum væri góð. Nú væri boltinn hjá Seðlabankanum en hann ákveður meginvexti sína í næstu viku. 13. mars 2024 12:36 Seðlabankastjóri staðfesti sjálfstæðan samningsrétt á vinnumarkaði Formaður VR segir seðlabankastjóra hafa staðfest að krafa breiðfylkingarinnar um forsenduákvæði varðandi þróun vaxta skerði ekki sjálfstæði Seðlabankans, enda hafi slík ákvæði verið í samningum áður. Samninganefnd VR fékk umboð trúnaðarráðs í gærkvöldi til að boða til verkfallsaðgerða. 14. febrúar 2024 11:46 Ásgeir segir forsenduákvæði ekki hagga Seðlabankanum Seðlabankastjóri segir Seðlabankann ekki skipta sér af því hvernig samið er um laun á vinnumarkaði enda ekki aðili að samningunum. Í forsenduákvæðum samninga væri hins vegar eðlilegra að miða við þróun kaupmáttar og verðbólgu en vaxtastefnu bankans. 13. febrúar 2024 11:45 Seðlabankinn hækkar raunvexti Seðlabankinn tók meðvitaða ákvörðun um það í morgun að hækka raunvexti með því að halda meginvöxtum sínum óbreyttum á sama tíma og verðbólga er að minnka. Seðlabankastjóri segir þetta til marks um að aðgerðir hans gegn verðbólgu hafi skilað árangri. 7. febrúar 2024 19:21 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira
Seðlabankastjóri grípur boltann frá verkalýðshreyfingunni Seðlabankastjóri segir nýgerða kjarasamninga góð tíðindi og hugsunin í samningunum væri góð. Nú væri boltinn hjá Seðlabankanum en hann ákveður meginvexti sína í næstu viku. 13. mars 2024 12:36
Seðlabankastjóri staðfesti sjálfstæðan samningsrétt á vinnumarkaði Formaður VR segir seðlabankastjóra hafa staðfest að krafa breiðfylkingarinnar um forsenduákvæði varðandi þróun vaxta skerði ekki sjálfstæði Seðlabankans, enda hafi slík ákvæði verið í samningum áður. Samninganefnd VR fékk umboð trúnaðarráðs í gærkvöldi til að boða til verkfallsaðgerða. 14. febrúar 2024 11:46
Ásgeir segir forsenduákvæði ekki hagga Seðlabankanum Seðlabankastjóri segir Seðlabankann ekki skipta sér af því hvernig samið er um laun á vinnumarkaði enda ekki aðili að samningunum. Í forsenduákvæðum samninga væri hins vegar eðlilegra að miða við þróun kaupmáttar og verðbólgu en vaxtastefnu bankans. 13. febrúar 2024 11:45
Seðlabankinn hækkar raunvexti Seðlabankinn tók meðvitaða ákvörðun um það í morgun að hækka raunvexti með því að halda meginvöxtum sínum óbreyttum á sama tíma og verðbólga er að minnka. Seðlabankastjóri segir þetta til marks um að aðgerðir hans gegn verðbólgu hafi skilað árangri. 7. febrúar 2024 19:21