Fótbolti

Var erfitt sem for­eldri að horfa í spegilinn

Aron Guðmundsson skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður í fótbolta og nýr leikmaður FC Kaupmannahafnar
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður í fótbolta og nýr leikmaður FC Kaupmannahafnar Vísir

Ís­­lenski lands­liðs­­mark­vörðurinn Rúnar Alex Rúnars­­son segir það svaka­­leg for­réttindi að hafa fengið að sjá heiminn í gegnum knatt­­spyrnu­­feril sinn til þessa. Á sama tíma geti það hins vegar verið flókið, til að mynda hvað for­eldra­hlut­verkið varðar. 

Hann hefur nú skrifað undir samning við FC Kaup­manna­höfn eftir mikið flakk um Evrópu undan­farin ár. Á­­kvörðun, sem er að miklu leyti tekin með hag dætra hans tveggja og fjöl­­skyldunnar í heild sinni að leiðar­­ljósi.

Það er rosa­lega erfitt sem for­eldri að horfa í spegilinn og vita að maður sé á­stæða þess að það eru alltaf ein­hverjar breytingar á lífi þeirra. Auð­vitað kemur mjög margt já­kvætt út úr þessu líka, tengt þessu lífi sem at­vinnu­maður, en þetta er eitt­hvað sem mér finnst ég þurfa að leggja á­herslu á núna.

Rúnar Alex

Rúnar gengur til liðs við FC Kaup­manna­höfn frá enska úr­vals­deildar­fé­laginu Arsenal. Samningur Rúnars hjá Skyttunum í Norður-Lundúnum var að renna sitt skeið og eftir þrjár mis­munandi láns­dvalir, í Eng­landi, Tyrk­landi og Belgíu, kom kallið frá Dana­veldi og skrifar Rúnar undir samning í Kaup­manna­höfn til sumarsins 2027.

„Að­dragandinn var svo sem ekki mikill,“ segir Rúnar aðspurður. „Þeim vantaði mark­mann og ég var að renna út á samningi hjá Arsenal. Þetta gerðist því mjög hratt og ég er mjög glaður með að þetta hafi gengið upp. Við þurftum að leysa ein­hver mál okkar á milli en allt leystist þetta nú á endanum.“

Hverju vill Rúnar á­orka á þessum tíma hjá hinu sögufræga liði FC Kaupmannahafnar?

„Mig langar að vinna titla. Ég er hérna kominn í fé­lag sem vill vinna alla þá titla sem í boði eru. Svo er það náttúru­lega, að ég held, draumur allra knatt­spyrnu­manna að spila í Meistara­deild Evrópu. Þá væri ég til í að vera spila reglu­lega sjálfur. Ekki vera mark­maður númer tvö eins og ég kem þó væntan­lega til með að vera næstu sex mánuðina. Þetta eru aðal mark­miðin.“

Vill verða traustins verður

Rúnar Alex kemur inn í leik­manna­hóp FC Kaup­manna­hafnar á þeim tíma­punkti að vitað er að Kamil Grabara, nú­verandi byrjunar­liðs mark­vörður liðsins, er á förum til þýska úr­vals­deildar­fé­lagsins Wolfs­burg eftir yfir­standandi tíma­bil.

Rúnar Alex teygði sig vel eftir þessum bolta í leik með íslenska landsliðinuVísir/Hulda Margrét

Hafandi þetta í huga er nokkuð ljóst að fram­undan eru mikil­vægar vikur og mánuðir fyrir þig þó svo að mínúturnar innan vallar verði kannski ekki miklar eða hvað?

„Al­gjör­lega. Það er mjög mikil­vægt fyrir mig að stimpla mig inn í liðið og ná að sýna mínum liðs­fé­lögum að ég er maður sem þeir geta treyst á. Það sama gildir um þjálfarann og því mjög fínt fyrir mig að fá næstu sex mánuði til þess að koma mér fyrir. Að mér sé ekki kastað beint út í djúpu laugina. Vonandi gefur það mér smá for­skot komandi inn í næsta tíma­bil.

Góð lausn fyrir alla 

Fyrri hluta yfir­standandi tíma­bils varði Rúnar Alex á láni hjá enska B-deildar liðinu Car­diff City þar sem að tæki­færin voru af skornum skammti.

„Þetta hefur verið svekkjandi tími og ég veit í raun og veru ekki af hverju (hann spilaði svona lítið). Ég fer þangað, á að spila og það var alltaf mark­miðið með skiptunum. Ég kem hins vegar til fé­lagsins þegar að tíma­bilið er byrjað og hinn mark­vörðurinn var að standa sig vel. Það var bara rosa erfitt fyrir þjálfarann og ó­sann­gjarnt gagn­vart þeim mark­verði að ætla taka hann úr liðinu. 

Frá mínu sjónar­horni var þetta ein­hvers konar patt­staða milli allra hlutað­eig­andi aðila. Það var því bara góð lausn að breyta til. Ég sá ekki fram á að mín staða væri að fara breytast hjá Car­diff, þetta var góð lausn fyrir mig og fjöl­skylduna mína að komast aftur til Kaup­manna­hafnar, fá langan samning og smá fót­festu.“

Rúnar Alex vill sanna það fyrir liðsfélögum sínum og þjálfurum að hann sé traustins verðurMynd: FCK

„Erfitt sem for­eldri að horfa í spegilinn“

Rúnar Alex nefnir þarna fjöl­skyldu sína. Hann á, á­samt eigin­konu sinni Ás­dísi Björk Sigurðar­dóttur, tvær dætur og undan­farin ár hefur verið mikið flakk á fjöl­skyldunni þar sem Rúnar hefur verið sendur vítt og breytt um Evrópu á láns­samningum frá Arsenal.

Hefur hann meðal annars um stund spilað knatt­spyrnu í efstu deild Tyrk­lands og Belgíu og fyrir komuna til Arsenal varði hann mark Dijon í frönsku úr­vals­deildinni. Á­kvörðunin um að snúa aftur til Dan­merkur, þar sem að Rúnari spilaði yfir fjögurra ára tíma­bil með liði Nord­sjælland á sínum tíma, er því ekki bara tekin með hag hans ferils í huga. Fjöl­skyldan vegur stóran þátt eðli­lega.

„Auð­vitað eru það svaka­leg for­réttindi að hafa fengið að sjá heiminn í gegnum minn knatt­spyrnu­feril til þessa en á sama tíma getur þetta verið flókið. Ég á tvær dætur og þær þurfa að vera í leik­skóla. Ég á konu sem vill búa sér til smá líf líka, ekki bara að vera elta mig. Þetta hefur verið rosa­lega krefjandi.

Elsta dóttir mín er fjögurra og hálfs árs og hún hefur verið á fimm mismunandi leik­skólum til þessa. Hún er alltaf að byrja upp á nýtt, alltaf að fara í að­lögum á nýjum stað. Það er rosa­lega erfitt sem for­eldri að horfa í spegilinn og vita að maður sé á­stæða þess að það eru alltaf ein­hverjar breytingar á lífi þeirra.“ 

„Auð­vitað kemur mjög margt já­kvætt út úr þessu líka, tengt þessu lífi sem at­vinnu­maður en þetta er eitt­hvað sem mér finnst ég þurfa að leggja á­herslu á núna. Að búa til öruggt um­hverfi fyrir börnin mín og konuna mína.

Þessi félagsskipti pössuðu því ein­hvern vegin mjög vel inn í þessar á­ætlanir á þessari stundu. Ég þekki deildina og borgina mjög vel eftir að hafa búið hérna á mínum tíma sem leik­maður Nord­sjælland. Þetta er að ein­hverju leyti eins og að snúa aftur heim og við fjöl­skyldan erum bara mjög spennt fyrir komandi tímum.“

Það hlýtur að hjálpa gríðar­lega mikið til, að vera kunnugur staðháttum?

„Já það gerir það. Litlu hlutirnir, þessir praktísku hlutir, eins og að fara út að kaupa í matinn verða mun auð­veldari. Við vitum hvar allt. Auð­vitað munu klár­lega koma upp ein­hver praktísk at­riði sem við þurfum að leysa en í grunninn er þetta allt bara rosa­lega já­kvætt. Svo er mikið af Ís­lendingum á þessu svæði og mjög auð­velt, geri ég ráð fyrir, að að­lagast öllu á nýjan leik.“

Viðtalið allt við Rúnar Alex má sjá í spilaranum hér að ofan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×