Veður

Styttir víða upp og rofar til

Atli Ísleifsson skrifar
Mikil hálka er víða á vegum og gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Mikil hálka er víða á vegum og gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Vísir/Vilhelm

Nú í morgunsárið eru austan fimm til þrettán metrar sekúndu á landinu og einhver rigning eða slydda í mörgum landshlutum.

Á vef Veðurstofunnar segir að þegar líði á daginn stytti upp nokkuð víða og rofi til, en það megi áfram búast við skýjuðu veðri austanlands og þar verði væntanlega lítilsháttar él síðdegis.

Frost verður á bilinu núll til sex stig og er búist við að kólni smám saman í veðri. Hálka er nú á vegum og gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu og víðar.

„Á morgun er útlit fyrir aðgerðalítið veður, norðaustan 3-10 með bjartviðri sunnan heiða, en svolítil él á norðan- og austanverðu landinu. Frost 0 til 6 stig.

Á föstudag verður áttin vestlæg eða breytileg og sem fyrr nær vindur sér ekki á strik. Búast má við dálitlum éljum í flestum landshlutum, en undir kvöld ætti að verða þurrt á landinu.

Spár lengra fram í tímann gera ráð fyrir að snúist til sunnanáttar um helgina með hlýnandi veðri, í byrjun næstu viku yrði þá hitinn kominn vel yfir frostmark um allt land,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðaustan 3-10 m/s. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi, en dálítil él á norðan- og austanverðu landinu. Frost 0 til 8 stig.

Á föstudag: Vestan og suðvestan 5-13, en hægari austantil á landinu. Svolítil él í flestum landshlutum, en þurrt um kvöldið. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.

Á laugardag: Suðlæg eða breytileg átt og víða bjart veður, en skýjað en úrkomulítið vestantil. Frost 0 til 10 stig, en hiti að 4 stigum vestast.

Á sunnudag: Sunnanátt, skýjað og þurrt að kalla, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi veður.

Á mánudag og þriðjudag: Sunnanátt og súld eða rigning með köflum, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 8 stig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×