Sport

Dag­skráin í dag: Átta manna úr­slit í pílunni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Luke Littler fagnar hér sigrinum gegn Matt Campbell.
Luke Littler fagnar hér sigrinum gegn Matt Campbell. Vísir/Getty

Í dag kemur í ljós hvaða menn komast í undanúrslit á HM í pílukasti þar sem spennan eykst með hverjum deginum.

Vodafone Sport

HM í pílukasti verður í beinni útsendingu á Vodafone Sport klukkan 12:30 og 19:00.

Átta manna úrslitin byrja klukkan 12:30 í dag með viðureignum Chris Dobey og Rob Cross annars vegar og Luke Littler gegn Brendan Dolan hins vegar.

Í kvöld, klukkan 19:00, mætir Michael van Gerwen svo Scott Williams áður en Luke Humphries og Dave Chisnall eigast við í lokaleik dagsins.

Allt saman er þetta í beinni á Vodafone Sport.

Stöð 2 Sport

Þá verður spurningaþátturinn Heiðursstúkan á Stöð 2 Sport klukkan 19:15. Um er að ræða spurningaþátt sem tengist leikjum og mótum sem verða í sýningu á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone. Jóhann Fjalar Skaptason stýrir þættinum en fótbolti verður aðalmálið í þætti kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×