Innlent

Segir lægðina standa stutt yfir og spáir snjó um helgina

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Vísir/Arnar

Gular viðvaranir skella á í nótt og lægðir ganga yfir landið nú í aðdraganda jóla. Veðurfræðingur segir að óveðrið verði yfirstaðið við fótferðartíma í fyrramálið. Þá spáir hann norðanátt með kólnandi veðri um jólin. 

Fréttamaður kíkti út í Kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræddi við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um veðrið næstu daga. 

„Lægðin er á Grænlandshafi og hún er dálítið djúp, ein sú dýpsta sem við höfum séð í haust,“ segir Einar. Hann segir lægðina þó hafa farið mildum höndum um okkur hingað til, þýtt sé og hiti yfir frostmarki um allt land. 

Í nótt segir Einar lægðina koma til með að slengja inn suðvestan- og vestanstreng og þá nái vindur stormstyrk á suðurlandi og vesturlandi. „Það stendur nú stutt yfir. Það má reikna með að það snjói eða geri hríð á hærri fjallvegum eins og á Hellisheiðinni en það verður slydda og rigning á láglendinu,“ segir Einar.

Hann segir að óveðrið verði yfirstaðið á höfuðborgarsvæðinu við fótaferðartíma í fyrramálið. „Þannig að morgunumferðin, hún sleppur. Og síðan má gera ráð fyrir því að hún kólni hægt og bítandi á morgun og geri snjóföl aðfaranótt föstudags, mjög víða á landinu.“

Hvernig verður með ferðalög milli landshluta, eigum við von á hálku?

„Það verður hálka yfir fjallvegi á morgun og síðar á láglendi sem fylgir svona éljagangi, einkum um vestanvert landið. Norðurlandið sleppur nú betur,“ segir Einar. Hann segir að ný lægðarbylgja sé væntanleg á föstudag og þá muni snjóinn taka upp mjög fljótt. 

Geturðu eitthvað sagt okkur um jólaveðrið?

„Það kemur til með að snjóa núna um helgina. Þann snjó tekur alla vega upp aftur. Það er ekki gott að segja til hvað gerist fyrir jólin en spárnar eru að hallast að því að um jólin snúist hann í norðanátt með kólnandi veðri,“ segir Einar. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×