Lífið

Birnir og Vaka gáfu dótturinni nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Birnir og Vaka eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum.
Birnir og Vaka eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum. Birnir

Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir skírðu frumburðinn við hátíðlega athöfn í heimahúsi á dögunum. Stúlkunni var gefið nafnið Gróa. 

Vaka deildi fallegum myndum af litlu fjölskyldunni prúðbúinni á skírnardaginn. 

Vaka klæddist fallegri ljósri dragt og Birnir var í svörtum jakkafötum. Gróa litla var með fallegan blómakrans á höfði og í prjónuðum spariskóm með bleikri slaufu við skírnarkjólinn. 

Í veislunni söng tónlistarkonan Guðrún Eyfjörð, þekkt sem GDRN, lagið Ó þú með sinni undurfögru rödd.

Dóttir Vöku og Birnis kom í heiminn 2. nóvember síðastliðinn. Hún lét foreldra sína heldur betur bíða eftir sér og mætti í heiminn tólf dögum eftir settan dag. Þeirri litlu var vel fagnað en auk þess að vera fyrsta barn Birnis og Vöku þá er Gróa fyrsta barnabarn foreldra Birnis þeirra Hildar Hafstein skartgripahönnuðar og Sigurðar Ólafssonar, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar í Grósku.

Birnir og Vaka hafa verið saman um nokkurra ára skeið og virðist ástin blómstra á milli þeirra. Ekki síst í nýjum hlutverkum sínum.

Birnir hefur verið einn vinsælasti rappari Íslands síðastliðin ár. Hann gaf út plötuna Bushido árið 2021 sem hlaut var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Vaka starfar hjá fjarskiptafyrirtækinu Nova ásamt því að halda úti hlaðvarpsþátt­un­um, Þegar ég verð stór, sem fram­leidd­ir eru af Útvarpi 101.


Tengdar fréttir

Birnir og Vaka eignuðust stúlku

Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir eignuðust frumburð sinn 2. nóvember síðastliðinn. Vaka deildi gleðitíðindunum í færslu á Instagram í gær. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×