Innlent

Suð­austan strekkingur við suð­vestur­ströndina

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hiti verður á bilinu 0-10 stig í dag.
Hiti verður á bilinu 0-10 stig í dag. Vísir/Vilhelm

Suðaustan strekkingur verður við suðvesturströndina í dag og slydda eða snjókoma með köflum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Þar kemur fram að hægari vindur verði annars staðar. Að mestu þurrt og léttir allvíða til á Norður- og Austurlandi. Frost verður á bilinu 0 til 10 stig.

Kaldast verður í innsveitum norðaustanlands en hiti verður í kringum frostmark suðvestantil. Á morgun verður svipað veður en líklega minni úrkoma sunnantil og útlit fyrir að einhver smáél komi inn á norðaustanvert landið síðdegis. Hiti mun lítið breytast.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:

Austan 8-13 m/s við suðvesturströndina, annars hægari vindur. Bjart með köflum, en stöku él austast og syðst. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum.

Á miðvikudag:

Austan 3-10 m/s, en 10-15 syðst. Dálítil él suðaustantil, en bjartviðri um landið vestanvert. Hiti um eða yfir frostmarki við suðurströndina, annars 0 til 10 stiga frost.

Á fimmtudag:

Austanátt og bjart með köflum, en skýjað og dálítil él á Suðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 8 stig, en hiti kringum frostmark sunnan heiða.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:

Útlit austlæga eða breytilega átt og þurrt að kalla. Fremur kalt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×