Gaf hvergi afslátt í baráttunni fyrir betra samfélagi Forlagið 5. desember 2023 12:10 Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Heimildarinnar, skrifaði söguna um ævi Guðrúnar Jónsdóttur, sem er oftast kennd við Stígamót, kvennaframboðið í Reykjavík, Kvennalistann og brautryðjendastarf í jafnréttismálum. Ævisagan Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg segir frá stórmerkilegu lífi Guðrúnar Jónsdóttur sem oftast er kennd við Stígamót, kvennaframboðið í Reykjavík, Kvennalistann og mikið brautryðjendastarf í jafnréttismálum hér á landi.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Heimildarinnar, skrifaði söguna sem hefst þegar Guðrún er lítil stúlka í Mýrdalnum og nær fram á síðustu ár. Við kynnumst áföllum í fjölskyldu hennar sem áttu eftir að setja mark sitt á afkomendur og fáum svipmyndir út uppvextinum sem mótuðu Guðrúnu og réttlætiskennd hennar. Þetta er saga um réttindabaráttu og taugastríð, baráttusaga konu sem vildi aldrei vera „meðfærileg“ heldur spurði erfiðra spurninga og barðist fyrir réttindum sem þóttu á sínum tíma ekki jafn sjálfsögð og nú. Þetta er saga konu sem alls staðar þurfti að brjóta veggi og rjúfa þök. Um leið er þetta þjóðarsaga um miklar samfélagshræringar þar sem Guðrún var í hringiðunni – og jafnframt falleg fjölskyldusaga um ást og tryggð, gleði og sorgir, vináttu og samheldni. Í mars 1984 gerðu konur uppreisn í kjörbúð og neituðu að borga nema því sem nam hlutfalli kvenna af kynbundnum launamun. Guðrún er fyrir miðri mynd. Mynd/Úr einkasafni Ingibjörg segir að Guðrún hafi ekki viljað „hefðbundna ævisögu karlmanns“, þar sem flotið væri um á yfirborðinu eða barið sér á brjóst. „Frá upphafi var hún staðráðin í að segja allt og hlífa sér hvergi. Fyrir vikið er hún á köflum ansi berskjölduð og fólk talar um að það finni sterkt fyrir henni, með öllum sínum kostum og göllum.“ Hún segir að Guðrún sé auðvitað kona andstæðna, en þannig er saga eins harðasta femínista landsins líka ástarsaga og uppfull af mýkt. „Saga Guðrúnar er samofin sögu kvennahreyfingarinnar nýju, þannig að um leið og þetta er ævi- og baráttusaga hennar, er þetta baráttusaga íslenskra kvenna og saga af samfélagi, sem byggir ekki aðeins á viðtölum við hana heldur einnig viðtölum við samferðafólk hennar og mjög umfangsmikilli heimildarvinnu.“ Guðrún fæddist í Vík í Mýrdal árið 1931, inn í heim sem er ekki lengur til og mótaðist mjög af uppvaxtarárum sínum, sem einkenndust meðal annars af sundrung fjölskyldunnar, fátækt og stéttaskiptingu segir Ingibjörg. „Hún þurfti að yfirstíga áföll og erfiðleika í sínu einkalífi til þess að verða sú kona sem við þekktum. Þar má meðal annars nefna sáran missi, ofbeldi og drusluskömmun samfélagsins þegar hún varð barnshafandi utan hjónabands, en hún skildi barnunga dóttur sína eftir heima á Íslandi þegar hún hélt utan til háskólanáms.“ Magdalena Schram (t.v.) og Guðrún Jónsdóttir sem fegurðardrottningar á borgarstjórnarfundi árið 1985. Stuttu áður hafði Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóri, látið umdeild ummæli falla við krýningu á fegurðardrottningu Íslands á Broadway. Mynd/Úr einkasafni Eftir heimkomuna hóf hún störf fyrir barnaverndaryfirvöld þar sem hún sinnti fjölskyldum sem bjuggu í braggahverfum, en á þeim árum var úrræðaleysið algjört. „Lýsingarnar þaðan eru vægast sagt skelfilegar. Hún átti eftir að koma víða við og hafa mikil áhrif, til dæmis í menntamálum, áður en hún varð þekkt fyrir kvenfrelsisbaráttuna. Allt gerði þetta það að verkum að þegar henni tókst loks að losa sig undan fjötrum þess hlutverks sem henni var ætlað við fæðingu, sem stelpa í þessum heimi og síðar húsmóðir, gaf hún hvergi afslátt af hugsjónum sínum í baráttunni fyrir betra samfélagi, ekki síst fyrir konur og börn.“ Bókin var nokkur ár í vinnslu og segir Ingibjörg það hafa verið mjög dýrmætt að verja öllum þessum tíma með Guðrúnu og eignast í henni góða vinkonu. „Á þeim árum frá því að við byrjuðum að hittast hef ég skilið, farið í krefjandi meistaranám, sameinað fjölskyldu og stofnað nýtt fyrirtæki og það hefur alltaf verið jafn nærandi að koma til hennar. Hún er auðvitað alveg einstök kona. Eins hefur verið vægast sagt áhugavert að fara í gegnum heimildir og sjá hvaða andstöðu konur mættu á þessari vegferð, skoða viðhorf samfélagsins sem birtust meðal annars í réttarkerfinu og umfjöllun fjölmiðla, átta mig á því hvernig íslenskar konur breyttu samfélaginu með samtakamætti sínum, en um leið hversu margt af því sem þær settu á dagskrá á sínum tíma á enn við í dag.“
Bókaútgáfa Bókmenntir Menning Mest lesið Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Lífið „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Lífið Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Lífið Abba skilar 350 milljörðum í kassann Tónlist Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat Lífið Þegar desember verður erfiðari en hann þarf að vera Áskorun Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Lífið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Lífið samstarf Áfall að dóttirin ætti 44 árum eldri kærasta Lífið Fleiri fréttir Stórglæsileg verslun Epli Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Heimilislegur ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Sjá meira