Innlent

Miklar skemmdir á fjölskylduheimili í Grinda­vík: „Ó­nýtt frá grunni og upp“

Jón Þór Stefánsson skrifar
„Húsið er algjörlega óíbúðarhæft.“ segir Halldóra sem telur að hún og fjölskylda sín eigi ekki afturkvæmt á heimilið.
„Húsið er algjörlega óíbúðarhæft.“ segir Halldóra sem telur að hún og fjölskylda sín eigi ekki afturkvæmt á heimilið. Aðsent/Halldóra Birta

Fjögurra manna fjölskylda komst að því í dag að heimili þeirra í Grindavík hefði orðið fyrir miklum skemmdum.

„Við vorum búin að búa okkur undir það versta, og þetta var eiginlega bara það. Maður vonaði auðvitað alltaf að þetta myndi fara vel, en í okkar tilfelli er það alls ekki þannig. Húsið er algjörlega óíbúðarhæft. Það er ónýtt frá grunni og upp,“ segir Halldóra Birta Viðarsdóttir í samtali við fréttastofu, en hún telur ljóst að hún og fjölskylda sín eigi ekki afturkvæmt í húsið.

„Okkar svartasta hugmynd raungerist.“

Líkt og sjá má á myndum innan úr húsinu eru skemmdirnar miklar. „Hver einasti veggur er sprunginn, loftið, gólfið. Maður sér að ef maður myndi reyna að sparsla í þetta aftur, og það kæmi annar jarðskjálfti þá færi þetta bara í steik aftur. Það er enginn að fara búa þarna.“

Aðsend/Halldóra Birta
Aðsend/Halldóra Birta

Í dag var greint frá því að sigdalur hefði myndast í Grindavík. Land í byggðinni hefði sigið um allt að einn metra. Halldóra útskýrir að svo virðist sem að húsið sé einmitt á mörkum sigdalsins. Þar af leiðandi hafi skemmdirnar orðið svo miklar.

„Við hliðina á bílskúrnum okkar er bara risastór hola. Nágranni okkar hefur kallað það „holu til helvítis“.“

Samfélagið sundrað

Halldóra segir að fjölskyldan sé ekki aðeins að missa heimili sitt heldur meira. Allt tengslanetið sé í uppnámi.

Hún minnist til að mynda á að eiginmaður hennar er uppalinn Grindvíkingur og stórfjölskylda hans meira og minna búsett í Grindavík.

„Þetta er samfélag sem er nánast sundrað. Það er búið að dreifa okkur um allt land. Þetta er mjög samheldið samfélag,“ segir Halldóra.

„Þarna er góður andi og mikil vinátta sem er búið að taka frá okkur.“

Mikil vinna fyrir bí

Eiginmaður Halldóru er sjúkraþjálfari og einkaþjálfari. Undanfarið ár hafði hann eytt miklu púðri í að koma upp starfstöð sinni í bílskúr hússins. Bílskúrinn er jafnvel sá hluti sem hefur farið hvað verst út úr skjálftunum.

„Tekjulind heimilisins er í raun tekin frá okkur. Hann stendur núna uppi með ekki með neitt. Ég reyndar er með vinnu í bænum, en ég get ekki mætt til vinnu í því ástandi sem ég er í,“ segir Halldóra sem líkir áfallinu við að missa einhvern nákominn.

Aðsend/Halldóra Birta

„Fótunum er bara algjörlega kippt undan manni. Við erum fjölskylda með tvö börn. Strákurinn okkar er nýbyrjaður í fyrsta bekk. Hann með sína vini og hvað verður af því?“

Halldóra segir næstu skref líklega vera að reyna að finna fjölskyldunni nýtt heimili.


Tengdar fréttir

Búa í hesthúsi meðan ósköpin ganga yfir

Þau Rúrik Hreinsson og Paricia Hobi flúðu bæinn eins og aðrir Grindvíkingar og fundu athvarf í hesthúsi í Fjárborgum, rétt fyrir ofan borgina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×