Lífið

Óttar og Anna Rut skilja

Árni Sæberg skrifar
Óttar er lögmaður og eigandi á Logos.
Óttar er lögmaður og eigandi á Logos. Logos

Óttar Pálsson, lögmaður á Logos, og Anna Rut Þráinsdóttir viðskiptafræðingur hafa ákveðið að slíta samvistum.

Þetta herma heimildir Vísis en Smartland greindi fyrst frá. Óttar og Anna Rut eiga saman þrjú börn og hafa búið í Akrahverfinu í Garðabæ, þar sem þau eru bæði enn skráð til heimilis.

Óttar hefur getið sér gott orð sem lögmaður og einn eigenda lögmannsstofunnar Logos. Hann hefur einnig setið í stjórnum fjölda fyrirtækja verið formaður siðanefndar Lögmannafélags Íslands.

Anna Rut er viðskiptafræðingur og starfar í mannauðsdeild Landsvirkjunar. Áður hefur hún meðal annars starfað hjá Arion banka og KPMG.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×