Sport

Einkunnir Íslands: Orri Steinn bestur

Andri Már Eggertsson skrifar
Orri Steinn og Ísak Bergmann fanga marki Orra
Orri Steinn og Ísak Bergmann fanga marki Orra Vísir/Hulda Margrét

Ísland tók á móti Lúxemborg í áttundu umferð undankeppni EM 2024 á Laugardalsvelli. Ísland var töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og var yfir í hálfleik með marki frá Orra Steini Óskarssyni.

Íslenska liðið var sennilega enn þá að svekkja sig á því að hafa aðeins skorað eitt mark í fyrri hálfleik því gestirnir jöfnuðu þegar aðeins ein mínúta var liðin af seinni hálfleik. Fleiri urðu mörkin ekki og liðin gerðu 1-1 jafntefli.

Hér að neðan má sjá einkunnir íslensku leikmannanna fyrir leikinn.

Byrjunarliðið:

Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður 5

Rúnar þurfti lítið sem ekkert að gera í fyrri hálfleik en hefði mögulega átt að gera betur í marki Lúxemborgar. Rúnar var síðan nálægt því að tapa leiknum þegar hann fór inn í teig þegar Ísland átti hornspyrnu undir lokin sem varð til þess að Gerson Rodrigues fékk færi fyrir opnu marki en klikkaði.

Alfons Sampsted, hægri bakvörður 5

Alfons lét lítið fyrir sér fara í kvöld. Alfons tók lítið þátt í sóknarleik Íslands og það var lítið sótt á hann varnarlega.

Guðlaugur Victor Pálsson, miðvörður 6

Guðlaugur Victor var flottur í miðverðinum. Það reyndi lítið á hann varnarlega á löngum köflum. Guðlaugur átti margar góðar langar sendingar sem sköpuðu góðar stöður á vellinum.

Sverrir Ingi Ingason, miðvörður 5

Sverrir Ingi var mættur aftur í miðvörðinn og var með fyrirliðabandið. Sverrir átti nokkur mjög klaufaleg augnablik í leiknum og leit illa út í marki Lúxemborgar. 

Kolbeinn Finnsson, vinstri bakvörður 5

Kolbeinn var líflegri bakvörðurinn í kvöld. Líkt og liðið var Kolbeinn flottur í fyrri hálfleik en gerði lítið sem ekkert í síðari hálfleik. 

Arnór Ingvi Traustason, miðjumaður 6 

Arnór Ingvi spilaði heilt yfir nokkuð vel á miðjunni í kvöld. Arnór var nálægt því að skora í fyrri hálfleik þegar hann komst inn í sendingu hjá Anthony Moris, markmanni Lúxemborgar, en skotið rétt framhjá.

Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður 5 

Ísak Bergmann átti erfitt uppdráttar á miðjunni. Ísak var í vandræðum með að tengja við varnarlínuna og leit ansi illa út í marki Lúxemborgar.

Willum Þór Willumsson, hægri kantmaður 5 

Willum Þór spilaði vel á hægri kantinum í fyrri hálfleik líkt og flest allir í íslenska liðinu. Willum fann sig ekki eins vel í síðari hálfleik og var tekinn af velli á 70. mínútu.

Arnór Sigurðsson, vinstri kantmaður 7 

Arnór gerði vel í fyrsta markinu þar sem hann bjó sér til svæði og renndi boltanum á Orra Stein sem skoraði af stuttu færi. Arnór var nálægt því að skora í fyrri hálfleik þegar hann átti skot í varnarmann og í slána.

Orri Steinn Óskarsson, sóknarmaður 7 (Maður leiksins)

Orri Steinn braut ísinn á 23. mínútu með eins miklu framherjamarki og það gat orðið. Orri var líflegur sem okkar fremsti maður og var duglegur að setja pressu á varnarlínu Lúxemborgar.

Spilamennska Íslands datt niður í síðari hálfleik og það var hægt að gefa sér það fyrir leik að hann myndi skipta við Alfreð Finnbogason á einhverjum tímapunkti. 

Hákon Arnar Haraldsson, sóknarmaður 6

Hákon Arnar misnotaði dauðafæri í stöðunni 0-0 þegar innan við tíu mínútur voru búnar. Hákon lét það ekki slá sig út af laginu og var mjög duglegur og tengdi vel við samherja sína. 

Varamenn

Jón Dagur Þorsteinsson 6 - Kom inn á fyrir Willum Þór Willumsson á 70. mínútu 

Skiptingarnar hleyptu lífi í leikinn en það skilaði þó ekki marki. Af þeim þremur sem komu inn á á 70. mínútu var Jón sá líflegasti.

Alfreð Finnbogason 5 - Kom inn á fyrir Orra Stein Óskarsson á 70. mínútu

Skiptingarnar hleyptu lífi í leikinn en það skilaði þó ekki marki.

Gylfi Þór Sigurðsson 5 kom inn á fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson á 70. mínútu

Það fengu allir sem voru á Laugardalsvelli gæsahúð þegar að Gylfi kom inn á. Gylfi tók nokkrar hornspyrnur og fékk eina aukaspyrnu en skaut í vegginn. 

Mikael Neville Anderson kom inn á fyrir Arnór Sigurðsson á 85. mínútu 

Spilaði of lítið til að fá einkunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×