Innlent

Allir í­búar komust út eftir að kviknaði í fjöl­býlis­húsi

Árni Sæberg skrifar
Töluverðan reyk lagði af húsinu.
Töluverðan reyk lagði af húsinu. Jón Þór Sigurðarson

Slökkviliðinu á Akureyri barst tilkynning um talsverðan svartan reyk í fjölbýlishúsi í Snægili í morgunsárið. Vel gekk að ráða niðurlögum elds sem reyndist inni í húsinu og unnið er að reykræstingu.

Þetta staðfestir Gunnar Rúnar Ólafsson, slökkviliðsstjórinn á Akureyri, í samtali við Vísi. Hann segir að útkall hafi borist klukkan 07:50 í morgun og reykkafarar hafi farið inni í húsið og slökkt eld hratt og örugglega.

Allir íbúar hússins hafi komið sér út af sjálfsdáðum áður en slökkvilið bar að garði, en fjórar íbúðir eru í húsinu.

Viðbragðsaðilar voru fljótir á vettvang í morgun.Jón Þór Sigurðarson

Þá segir hann að ekkert liggi fyrir að svo stöddu um upptök eldsins en að ljóst sé að hann hafi verið töluvert mikill miðað við magn svarts reyks sem stóð upp af húsinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×