Fótbolti

Selma Sól lagði upp í stór­sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rosenborg vann stórsigur í dag.
Rosenborg vann stórsigur í dag. Rosenborg

Selma Sól Magnúsdóttir kom inn af bekknum í stórsigri Rosenborg á Stabæk í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Sigurinn þýðir að Rosenborg heldur í við topplið Vålerenga.

Stabæk og Rosenborg mættust nýverið í hörkuleik í bikarnum en það verður seint sagt að leikur kvöldsins hafi verið spennandi. Gestirnir í Rosenborg komust 2-0 yfir eftir aðeins átta mínútu og voru 3-0 yfir í hálfleik. Eftir að staðan varð 4-0 kom Selma Sól inn af bekknum.

Heimaliðið minnkaði muninn áður en Selma Sól lagði upp fimmta mark Rosenborg á 85. mínútu og þar við sat, lokatölur 1-5.

Eftir sigur kvöldsins er Rosenborg áfram í 2. sæti en nú með 43 stig, stigi minna en topplið Vålerenga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×