Fótbolti

Sádarnir halda áfram að plokka skrautfjaðrirnar af Seríu A

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sergej Milinkovic-Savic hefur leikið með Lazio undanfarin átta ár.
Sergej Milinkovic-Savic hefur leikið með Lazio undanfarin átta ár. getty/Giuseppe Maffia

Ekkert lát virðist á félagaskiptum stjarna úr fótboltaheiminum til Sádi-Arabíu. Nú virðist einn besti miðjumaður ítölsku úrvalsdeildarinnar á leið til Sadí-Arabíu.

Sergej Milinkovic-Savic hefur verið í hópi bestu leikmanni ítölsku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár. Á síðasta tímabili átti hann stóran þátt í því að Lazio endaði í 2. sæti ítölsku deildarinnar.

Milinkovic-Savic hefur leikið með Lazio frá 2015, alls 341 leik og skorað 69 mörk. En nú gæti dvöl hans í ítölsku höfuðborginni verið á enda.

Al-Hilal í Sádi-Arabíu vill fá Milinkovic-Savic og er tilbúið að borga rúmlega 34 milljónir punda fyrir hann. Ef af félagaskiptunum verður fær Serbinn sautján milljónir punda í árslaun hjá Al-Hilal.

Ekki er langt síðan Al Nassr keypti Marcelo Brozovic frá Inter og nú gæti annar af bestu miðjumönnum ítölsku úrvalsdeildarinnar verið á leið til Sádi-Arabíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×