Innlent

Ekið á gangandi veg­faranda á Hverfis­götu

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynning um slysið barst skömmu fyrir klukkan níu í morgun.
Tilkynning um slysið barst skömmu fyrir klukkan níu í morgun. Vísir/Vilhelm

Slys varð þegar ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Hverfisgötu og Klapparstígs í miðborg Reykjavíkur í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði voru sjúkrabílar sendir á vettvang, en tilkynning um slysið barst skömmu fyrir klukkan níu í morgun.

Ekki liggur fyrir um hvort viðkomandi hafi slasast alvarlega en varðstjóri segir að hann sá sem varð fyrir bílnum hafi verið með meðvitund þegar sjúkraflutningamenn mættu á slysstaðinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×