Innlent

Eldur kom upp í gufu­baði í húsi í Garða­bæ

Atli Ísleifsson skrifar
Slökkviliðsmaður að störfum í Garðabæ í nótt.
Slökkviliðsmaður að störfum í Garðabæ í nótt. SHS

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þegar eldur kom upp í gömlu gufubaði og baðherbergi í einbýlishúsi við Holtsbúð í Garðabæ í nótt.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæði voru fjórir í húsinu, auk eins kattar, þegar eldurinn kom upp en ekki þurfti að flytja neitt þeirra á bráðadeild Landspítala. 

Slökkvistarf gekk vel en nokkrar skemmdir urðu á húsinu.

Tilkynning um eldinn barst slökkviliði klukkan 2:25 í nótt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×