Sport

Katrín Tanja fær frí á mánudögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrin Tanja Davíðsdóttir með kærastanum Brooks Laich og hundinum sínum Theo.
Katrin Tanja Davíðsdóttir með kærastanum Brooks Laich og hundinum sínum Theo. Instagram/@katrintanja

Katrín Tanja Davíðsdóttir er ein af fjórum Íslendingum sem er á fullu að undirbúa sig fyrir heimsleikana í CrossFit sem hefjast eftir tæpan mánuð.

Kartín Tanja vann sér þátttökurétt í gegnum Norður-Ameríku en hún náði öðrum besta árangrinum í undarúrslitamótinu vestan megin.

Katrín æfði heima á Íslandi á síðasta tímabili en er nú aftur komin út til Bandaríkjanna.

Að þessu sinni nýtur hún liðsinnis HWPO Training sem er æfingaprógram Mat Fraser.

Fraser varð eins og flestir vita, heimsmeistari fimm ár í röð og lagði keppnisskóna á hilluna sem ríkjandi heimsmeistari fyrir að verða þremur árum.

Fraser er með nokkra öfluga keppendur hjá sér sem eru á lokasprettinum í undirbúningi sínum fyrir leikana.

Fraser veit um hvað þetta snýst enda yfirburðamaður sem mætti alltaf klár í slaginn á hverjum heimsleikum.

Það hefur verið hægt að fylgjast aðeins með Katrínu Tönju og hinu Heimsleikafólki Fraser á samfélagsmiðlum fyrirtækisins sem er með aðsetur í Burlington í Vermont fylki á austurströnd Bandaríkjanna.

Þar kom meðal annars fram að Katrín Tanja og hin öll fá frí á mánudögum af því að það var alltaf venjan hjá Fraser sjálfum.

Á mánudögum einbeitti hann sér að því að hlaða batteríin, laga skrokkinn og hugsa vel um sig. Hann vildi frekar æfa á fullu alla helgina en hvíla sig síðan á mánudegi.

Keppendurnir hans hlýða honum í einu og öllu og þess vegna eru allir í fríi í dag mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×