Innlent

Fólk sem lifir með heilabilun þurfi rödd

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Teepa Snow er ánægð að vera komin til Íslands og þrátt fyrir stutt stopp var hún stórhuga og ætlaði að ganga á fjöll og fara í lónið bláa.
Teepa Snow er ánægð að vera komin til Íslands og þrátt fyrir stutt stopp var hún stórhuga og ætlaði að ganga á fjöll og fara í lónið bláa. Vísir/Hannes Einar

Teepa Snow, alþjóðlegur fyrirlesari um þjónustu við heilabilaða, segir skipta mestu máli að hafa jákvæðni að leiðarljósi. Það geti dregið úr álagi bæði hjá þeim sem eru með heilabilun og þeirra sem standa þeim næst. 

Teepa Snow frá Bandaríkjunum fer víða um heim með fyrirlestra um þjónustu við heilabilaða og kom í fyrsta sinn á dögunum í þeim erindagjörðum til Íslands. Hún hefur yfir fjörutíu ára reynslu bæði í beinni þjónustu við fólk með heilabilun og í fræðslustarfi. Snow hefur vakið athygli fyrir nálgun sína við þjónustu fólks með heilabilun og fjölbreyttar aðferðir við að miðla þekkingu sinni til áheyrenda. Hún nálgast heilabilun með jákvæðum hætti.

 „Við reynum að auka skilning á mismunandi leiðum til að líta á heilabilun og umönnun heilabilaðra með því að hjálpa fólki sem vill hjálpa að læra það og skilja hvað er um að vera hjá þeim sem eru heilabilaðir,“ segir Snow. Þannig sé hægt að draga úr streitu hjá öllum. „Lítum á fólk sem einstakt og dýrmætt, eins og gersemar og veitum því rétta umönnun í réttu umhverfi og þá mun það skína,“ segir hún. Einmitt þannig hafi þau fengið hugmyndina um sjónræn merki , munnleg merki og líkamleg merki hjá fólki með heilabilun.

Reynslan hafi sýnt að mikilvægt sé að vinna með fólkinu sem félaga. „Við gerum það sem við gerum með þeirra leyfi. Við upplifum ekki að neinn sé neyddur til neins eða sé hunsaður og það breytir öllu,“ segir Snow jafnframt.

Nauðsynlegt væri að skilja hvað það er sem breytist í heila fólks og notfæra þá þekkingu sem hinn heilbilaði býr enn yfir.

Að sögn Snow er heilabilun vandamál um allan heim. „Vandamálin eru úti um allan heim hvað heilabilun varðar og fólkið sem lifir með heilabilun leitar að rödd og ég hef reynt að hjálpa til við að vekja þessa rödd: Ég er enn hér, ég er enn viðstaddur. Ég er sá sem ég var en nú er ég breyttur. Vilt þú vera öðruvísi til að styðja mig eins og ég er?“ segir Snow að lokum. 


Tengdar fréttir

„Ég hef fundið að ég díla við sorgina með hlaupum“

Útvarpskonan Ósk Gunnarsdóttir hefur unnið úr sorginni sem fylgdi föðurmissinum sem hún upplifði fyrir rúmu ári síðan með hlaupum. Í ár hleypur hún fyrir Alzheimersamtökin í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og safnar áheitum sem renna til samtakanna. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×