Innlent

Vill að stjórnendur axli ábyrgð: „Það blasir við að þetta er áfellisdómur“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Katrín Jakobsdóttir ræddi við fjölmiðla í Vestmannaeyjum.
Katrín Jakobsdóttir ræddi við fjölmiðla í Vestmannaeyjum. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skýrsluna um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka áfellisdóm. Það sé eðlileg krafa almennings að stjórnendur bankans axli með einhverjum hætti ábyrgð.

Katrín er stödd í Vestmannaeyjum með forsætisráðherrum Norðurlandanna og forsætisráðherra Kanada sem funda þar í dag. Hún ræddi skýrslu Fjármálaeftirlitsins sem birt var í morgun um 1,2 milljarða króna sátt við Íslandsbanka vegna galla á framkvæmdinni á sölu á hlut ríkisins í bankanum.

Katrín ræddi við fjölmiðla í Eyjum og sagði ljóst hvað varðar framkvæmdina á sölunni að hún hefði ekki gengið vel. Það væri mjög alvarlegt mál. Stór hluti bankans, eða fjörutíu prósent, séu í eigu almennings og ljóst að stjórnendur og stjórn bankans þurfi að standa skil á sínum gjörðum gagnvart almenningi.

Katrín sagði greinilega hafa verið mjög vel vandað til verka við gerð skýrslunnar sem gæfi heildstæða mynd af röð atburða. 

„Það er alveg ljóst að framin voru alvarleg brot á þeim reglum sem eiga að gilda af hálfu bankans. Það kemur líka fram í skýrslunni að Bankasýslan hafi fengið villandi upplýsingar frá bankanum sem er mjög alvarlegt. Það kemur fram að sýndur hafi verið skortur á áhættuvitund. Það er ljóst að þessi skýrsla er áfellisdómur um vinnubrögð Íslandsbanka,“ segir Katrín.

„Það blasir við að þetta er áfellisdómur.“

Málið verði rætt í ríkisstjórn í fyrramálið og í framhaldinu fundi ráðherranefnd um efnahagsmál. Í nefndinni eiga auk Katrínar sæti Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Hlutverk nefndarinnar er að samræma stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og hafa eftirlit með framkvæmd efnahagsstefnunnar á einstökum sviðum.

Hvorki Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka né Finnur Árnason stjórnarformaður bankans hafa gefið kost á viðtölum það sem af er degi.


Tengd skjöl


Tengdar fréttir

„Stjórnin á bankanum er óásættanleg að mínu mati“

Stjórnendur Íslandsbanka brugðust trausti þjóðarinnar algjörlega við sölu bankans á hlutum í eigu ríkisins og stjórn bankans er óáættanleg að mati viðskiptaráðherra. Alvarleg og kerfislæg brot Íslandsbanka við sölu bankans eru dregin fram í skýrslu Fjármálaeftirlits Seðlabankans um sátt sem gerð var á dögunum vegna sölunnar en birt var í morgun.

Sam­þykktu allar beiðnir starfs­manna um að taka þátt í út­boðinu

Regluvarsla Íslandsbanka samþykkti allar beiðnir starfsmanna um þátttöku í útboði á hlut ríkisins í bankanum í fyrra þrátt fyrir að aðeins fjórir starfsmenn og einn tengdur aðili væri flokkaður sem fagfjárfestar þegar útboðið hófst. Fjármálaeftirlitið telur þátttöku starfsmanna hafa skapað fjölmarga hagsmunaárekstra.

Reglur um hljóð­upp­tökur við­varandi vanda­mál hjá Ís­lands­banka

Í sátt um greiðslu sektar Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum kemur fram að bankinn hafi brotið ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að skrá ekki og varðveita símtalsupptökur vegna 162 símtala sem starfsmenn hans áttu í tengslum við útboðið.

Sáttin birt: Flokkuðu fjárfesta ranglega, tóku ekki upp símtöl og villtu um fyrir Bankasýslunni

Seðlabankinn hefur birt samkomulag við Íslandsbanka um að ljúka máli bankans vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Meðal þess sem kemur fram í samkomulaginu er að stjórn bankans og bankastjóri hafi ekki innleitt stjórnarhætti og innra eftirlit með fullnægjandi hætti. Þá voru átta almennir fjárfestar flokkaðir sem sem fagfjárfestar með röngum hætti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×