Íslenski boltinn

Fjöldi leikja færður vegna þátt­töku U-19 ára lands­liðsins á EM

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jóhannes Kristinn Bjarnason er í hópnum.
Jóhannes Kristinn Bjarnason er í hópnum. Vísir/Anton Brink

Íslenska U-19 ára landsliðið í knattspyrnu tekur þátt í úrslitakeppni EM 2023 í sumar. Sökum þess hefur fjöldi leikja í Bestu deild karla og Lengjudeild karla verið færður til. Sjá má leikina hér að neðan.

Í gær, mánudag, greindi Knattspyrnusamband Íslands frá því að fjöldi leikja yrði færður til þar sem U-19 ára liðið færi út þann 30. júní en úrslitakeppni EM fer fram á Möltu 4. til 10. júlí. Ísland er í riðli með Spáni, Noregi og Grikklandi.

Vegna þessa hefur KSÍ ákveðið að færa 8 leiki í Bestu deild karla og 13 í Lengjudeild karla.

„Tekin verður ákvörðun um breytingar leikja í 12. umferð Lengjudeildar karla að loknum leikjum í riðlakeppni EM U19. Hafa ber í huga að breytingar á leikmannahóp U19 og leikbönn viðkomandi leikmanna getur orðið til þess að ofgreindar breytingar verði afturkallaðar,“ segir enn fremur á vef KSÍ.

Besta deild karla

Breiðablik - Stjarnan

  • Var: Föstudaginn 7. júlí kl. 19.15 á Kópavogsvelli
  • Verður: Sunnudaginn 30. júlí kl. 19.15 á Kópavogsvelli

Breiðablik - Fylkir

  • Var: Sunnudaginn 30. júlí kl. 19.15 á Kópavogsvelli
  • Verður: Föstudaginn 7. júlí kl. 19.15 á Kópavogsvelli

FH - KA

  • Var: Laugardaginn 8. júlí kl. 17.00 á Kaplakrikavelli
  • Verður: Nýr leiktími ákveðinn síðar. - Háð árangri KA í Sambandsdeild UEFA

HK - KR

  • Var: Mánudaginn 10. júlí kl. 19.15 í Kórnum
  • Verður: Fimmtudaginn 13. júlí kl. 19.15 í Kórnum

Valur - Fylkir

  • Var: Mánudaginn 10. júlí kl. 19.15 á Hlíðarenda
  • Verður: Miðvikudaginn 12. júlí kl. 19.15 á Hlíðarenda

Valur - Fram

  • Var: Mánudaginn 24. júlí kl. 19.15 á Hlíðarenda
  • Verður: Sunnudaginn 23. júlí kl. 19.15 á Hlíðarenda

HK - Stjarnan

  • Var: Mánudaginn 24. júlí kl. 19.15 í Kórnum
  • Verður: Sunnudaginn 23. júlí kl. 19.15 í Kórnum

Stjarnan - Fram

  • Var: Mánudaginn 31. júlí kl. 19.15 á Samsung-vellinum
  • Verður: Fimmtudaginn 27. júlí kl. 19.15 á Samsung-vellinum

Lengjudeild karla [11. umferð]

Vestri - Selfoss

  • Var: Miðvikudaginn 12. júlí kl. 18.00 á Olís-vellinum
  • Verður: Þriðjudaginn 8. ágúst kl. 18.00 á Olís-vellinum

Grótta - ÍA

  • Var: Miðvikudaginn 12. júlí kl. 19.15 á Vivaldi-vellinum
  • Verður: Þriðjudaginn 8. ágúst kl. 19.15 á Vivaldi-vellinum

Lengjudeild karla [14. umferð]

Fjölnir - Selfoss

  • Var: Fimmtudaginn 27. júlí kl. 18.30 á Extra vellinum
  • Verður: Laugardaginn 29. júlí kl. 14.00 á Extra vellinum

Njarðvík - Grindavík

  • Var: Fimmtudaginn 27. júlí kl. 19.15 á Rafholts vellinum
  • Verður: Laugardaginn 29. júlí kl. 14.00 á Rafholts vellinum

Leiknir Reykjavík – Þór Akureyri

  • Var: Föstudaginn 28. júlí kl. 18.00 í Breiðholti
  • Verður: Laugardaginn 29. júlí kl. 14.00 í Breiðholti

Lengjudeild karla [15. umferð]

Þór Akureyri - Fjölnir

  • Var: Þriðjudaginn 1. ágúst kl. 18.00 á Þórsvelli
  • Verður: Miðvikudaginn 2. ágúst kl. 18.00 á Þórsvelli

ÍA – Leiknir Reykjavík

  • Var: Þriðjudaginn 1. ágúst kl. 19.15 á Akranesi
  • Verður: Miðvikudaginn 2. ágúst kl. 19.15 19.15 á Akranesi

Selfoss - Ægir

  • Var: Þriðjudaginn 1. ágúst kl. 19.15 á JÁVERK-vellinumi
  • Verður: Miðvikudaginn 2. ágúst kl. 19.15 á JÁVERK-vellinumi

Þróttur Reykjavík - Njarðvík

  • Var: Þriðjudaginn 1. ágúst kl. 19.15 á AVIS-vellinum
  • Verður: Miðvikudaginn 2. ágúst kl. 19.15 á AVIS-vellinum

Lengjudeild karla [16. umferð]

Þróttur Reykjavík - Selfoss

  • Var: Fimmtudaginn 10. ágúst kl. 19.15 á AVIS-vellinum
  • Verður: Laugardaginn 12. ágúst kl. 17.00 á AVIS-vellinum

Fjölnir - ÍA

  • Var: Fimmtudaginn 10. ágúst kl. 18.30 á Extra vellinum
  • Verður: Föstudaginn 11. ágúst kl. 18.30 á Extra vellinum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×