Útskriftargleði um helgina
Fjöldi fólks útskrifaðist um helgina, meðal annars Listaháskóla Íslands, þar á meðal tónlistarmaðurinn Logi Pedro, sem birti mynd af sér með útskriftarskjalinu.
Grímuverðlaun
Leikkonan Íris Tanja Flygenring hlaut verðlaunin fyrir leikkona ársins í aukahlutverki á Grímunni, fyrir sýninguna Samdrættir.
Stolt mamma
Leikkonan Edda Björgvinsdóttir birti mynd af syni sínum og leikaranum, Björgvini Franz Gíslasyni, taka á móti verðlaununum sem söngvari ársins á Grímunni.
Vill halda Þjóðhátiðardaginn eins og Norðmenn
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra, mætti prúðbúin í miðbæ Reykjavíkur klædd íslenska þjóðbúningnum á 17. júní. Búninginn fékk hún frá ömmu sinni heitinni og nöfnu.
Íslendingar taki Norðmenn til fyrirmyndar hvað varðar 17. júní
Viku gömul í bænum
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jón Skaftason, stjórnarformaður Sýnar, fögnuðu Þjóðhátíðardeginum með dætrum sínum þremur en sú yngsta var þá aðeins viku gömul.
Hildur Björnsdóttir og Jón Skaftason eignuðust stúlku
Þjóðhátíð í sólinni
Tónlistarkonan Birgitta Haukdal fagnaði Þjóðhátíðardeginum á sólarströnd, hoppandi glöð í hvítum sundbol.
Fyrsta lag IceGuys
Íslenska strákabandið IceGuys gáfu út sitt fyrsta lag í vikunni, Rúlletta. Meðlimir sveitarinnar eru þeir Jón Jónsson, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Aron Can og Rúrik Gíslason.
Rúrik Gísla einn liðsmanna strákabandsins IceGuys
Harry Styles tónleikar og kokteilar
Áhrifavaldarnir og vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Birta Líf Ólafsdóttir og Hildur Sif Hauksdóttir fóru á tónleika með tónlistarmanninum Harry Styles í London. Vinkonurnar klæddu sig upp fyrir tónleikana og voru í stíl með kúrekahatt og fjaðrir í mismunandi litum.
Skvísulæti í London
Camilla Rut Rúnarsdóttir, athafnakona og áhrifavaldur, virtist spennt fyrir tónleikum Harry Styles.
Útilega með fjölskyldunni
Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld skellti sér í útilegu með fjölskyldunni um helgina.
Ástfanginn í Laugardalnum
Tónlistarmaðurinn Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli, skrifaði einlæg orð til kærustunnar á dögunum.
„Fyrir fjórum árum byrjuðu tveir táningar í sambandi. Núna eiga þau litla kjallaraíbúð í Laugardalnum og Smeg ísskáp saman. Lífið er snilld með þér Birta. Elska þig,“ skrifar Króli.
PBT-húðflúr á lærið
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, þekktur sem Prettyboitjokkó, birti myndaseríu frá helginni. Á einni myndinni má sjá karlmann með skammstöfunina, PBT, húðflúrað á lærið á sér, sem stendur fyrir Prettyboitjokko.
Einlæg feðgastund
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson, birti mynd af sér og syni sínum frá Þjóðhátíðardeginum og segir hann þá hafa átt einstaka stund þann dag.
„Eitt fallegasta móment sem ég hef átt á sviði var í gær þegar Nói stóð beint fyrir framan mig á 17. júní skemmtun Seltjarnarness og söng Ástin heldur vöku með mér, hvert einasta orð, skrifar Júlí við myndina,“ skrifar Júlí.
Sumar og sól á Egilsstöðum
Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ og einn af eigendum Extraloppunnar, elti sólina til Egilsstaða með kærastanum Jóhanni Sveinbjörnssyni, þar sem þau nutu sólarinnar á Egilsstöðum um helgarinnar í góðra vinahópi.
Stóra eplið heillar
Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, naut lífsins í New York í Bandaríkjunum með unnustunni og áhrifavaldinum, Línu Birgittu Sigurðardóttur, á dögunum.
Fimmtugsafmæli í rigningu
Almar Örn Hilmarsson,
Biggi play, smarta maria, pall winkel