Stjörnulífið: Seðlabankastjóri í sólinni og íslenskur stjörnufans í Flórens Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 30. maí 2023 08:00 Liðin vika einkenndist af miklu leyti af árshátíðum fyrirtækja í útlöndum og almennri sólarþrá Íslendinga. Liðin vika á samfélagsmiðlum einkenndist af útlandagleði þjóðþekktra Íslendinga sem skemmtu sér á árshátíðum fyrirtækja, í brúðkaupum eða nærðu hina almennu sólarþrá.
Fjölmargir Íslendingar yfirgáfu vonda veðrið á fimmtudag og föstudag og héldu til móts við stuð og stemmningu í betra veðri. Meðal þeirra sem sáust í Saga Business lounge á fimmtudeginum var Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ásamt Helgu Viðarsdóttur unnustu sinni. Gestir í lounge-inu tóku vel eftir Ásgeiri sem stóð í ströngu á miðvikudaginn þar sem tilkynnt var um 1,25 stigs prósentustiga hækkun stýrivaxta til að sporna við verðbólgu. Áfangastaður Ásgeirs liggur ekki fyrir en allar líkur á að hann hafi verið með elskunni sinni Helgu sem birti mynd af sér með góðri vinkonu á glæsihótelinu Hotel Dubrovnik Palace í króatíska strandbænum Dúbrovnik. Íslendingadjamm í Króatíu Árshátíð Kviku banka var haldin með pompi og prakt í króatísku borginni Split, þar sem yfir sex hundruð manns mættu og skemmtu sér undir veislustjórn fjölmiðlamannsins Sigga Gunnars. View this post on Instagram Leikkonan María Thelma Smáradóttir var á meðal þeirra sem skemmtu sér með liðsmönnum Kviku og birti myndir frá herlegheitunum. View this post on Instagram A post shared by MARÍA THELMA (@mariathelma93) Toyota hélt árshátíð starfsmanna í Kaupmannahöfn í glæsihýsinu Molkets Palæ, sem er yfir þrjú hundruð ára gömul bygging. Skemmtikraftarnir Eva Ruza Miljevic og Hjálmar Örn Jóhannesson héldu þar uppi stuðinu ásamt tónlistarkonunni Bríet og plötusnúðnum Röggu Hólm. View this post on Instagram A post shared by BRI ET (@brietelfar) Skemmtikrafturinn Eva Ruza birti mynd af sér í kjól sem er afar líkur kjól sem raunveruleikastjarnan Kim Kardashian klæddist fyrir skemmstu, nema Eva gat rennt sínum upp eins og hún segir. View this post on Instagram A post shared by Eva Ruza (@evaruza) View this post on Instagram A post shared by Eva Ruza (@evaruza) View this post on Instagram A post shared by Eva Ruza (@evaruza) Þá hélt Öryggismiðstöðin árshátíð fyrir sitt fólk í Berlín. Atli Þór Albertsson og Eyþór Ingi voru veislustjórar en Selma Björns mætti og tryllti lýðinn með slögurum úr öllum áttum. Siggi Hlö sá svo um tónlistina inn í nóttina. Þá fagnaði Blush með árshátíð í Barcelona. View this post on Instagram A post shared by Fanney Lilja Vignisdóttir (@fanneyvignis) Stjörnufans í brúðkaupi í Feneyjum Aðalsteinn Gunnar Jóhannsson og Kristrún Ólöf Sigurðardóttur buðu líklega til brúðkaups ársins – hvað Íslendinga varðar – í listaborginin Flórens á Ítalíu. Verðið lék við parið ástfangna og gesti sem voru fjölmargir. Sérstaklega var vel skipað með listamanna sem tróðu upp hver á fætur öðrum. Aðalsteinn, stundum nefndur Alli ríki eins og kvótagoðsögn af Austfjörðum, flaug Páli Óskari til Flórens og var sannkölluð flugeldasýning þegar Palli tók sína helstu slagara. Hljómsveitin Vök var á svæðinu, Salka Sól sömuleiðis, Snorri Helga og Saga Garðars, Högni í Hjaltalín og Snæfríður Ingvars. Þá var Valdimar Guðmundsson sömuleiðis viðstaddur og söng fyrir gesti. View this post on Instagram A post shared by S A L K A S Ó L (@salkaeyfeld) Hermannsdætur og Inga Lind í Barcelona Fyrrnefnd Saga og Snorri voru í Barcelona á dögunum og sáu þar sjálfan Bruce Springsteen troða upp. Þessa helgina voru Chris Martin og félagar í Coldplay með tónleika í Katalóníu. Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona, sem bjó um árabil í Barcelona, lét sig ekki vanta þegar talið var í helstu slagarana. Inga Lind hefur verið á faraldsfæti en rúm vika er síðan hún naut lífsins í Portúgal með vinkonum sínum í golfinu. View this post on Instagram Fleiri íslenskar glæsikonur voru í Barcelona um helgina og færðu samviskusamlega til bókar á samfélagsmiðlum. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona, Lára Björg Björnsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, systurnar Eva Laufey og Edda Hermannsdætur. Vinkonurnar gerðu vel við sig í mat og drykk og Eva Laufey skellti sér út að skokka. View this post on Instagram A post shared by Eva Laufey Kjaran (@evalaufeykjaran) View this post on Instagram Paraferð til Bahamaeyja Athafnakonan Móeiður Lárusdóttir og knattspyrnumaðurinn Hörður Björgvin Magnússon nutu lífsins í rómtantískri paraferð á Bahamaeyja þar sem þau böðuðu sig meðal annars með svínum í sjónum. View this post on Instagram A post shared by Móeiður Lárusdóttir (@moeidur) View this post on Instagram A post shared by Móeiður Lárusdóttir (@moeidur) Hesthúsadjamm og litli frændi með á þing Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra skellti sér á svakalegt hesthúsadjamm með vinkonum sínum í hesthúsabyggðinni nærri Guðmundarlundi. Riðið var út og svo blásið til veislu þar sem dansað var við hina ýmsu slagara á borð við Cotton Eyed Joe og Despacito. Nína Dögg Filippusdóttir leikkona var í miklu stuði og fleiri leikkonur. Arnþór Ingi Kristinsson mætti með gítarinn og svo ætlaði allt um koll að keyra þegar súkkulaðierfinginn og poppstjarnan Patrik Atlason mætti á svæðið. Áslaug Arna var svo mætt á þingið seinni part dags á annan í hvítasunnu með lítinn frænda sinn með sér. Hún fékk aðstoð annarra þingmanna til að gæta Sigurbjörns litla á meðan hún steig í pontu. View this post on Instagram A post shared by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) Sendi eiginkonunni fallega afmæliskveðju Listamaðurinn Elli Egilsson birti einlæga afmæliskveðju til eiginkonu sinnar og leikkonunnar Maríu Birtu Bjarnadóttur á Instagram í tilefni af 35 ára afmæli hennar í gær þar sem hann lýsir henni sem hjartahlýrri og dásamlegri móður. View this post on Instagram A post shared by (@elliegilsson) Ferð til borg ástarinnar Hjónin Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknar og verðandi borgarstjóri, og Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, nutu lífsins saman í París, hinni rómantísku höfuðborg Frakklands. View this post on Instagram A post shared by Milla Ósk Magnúsdóttir (@millamagnusdottir) Aflslöppuð á Spáni Grínistinn og leikkonan Birna Rún Eiriksdóttir slakar á og gerir vel við sig í sólinni í spænska bænum Sitges á milli þess sem hún tekur brekkuspretti og fær sér ís. View this post on Instagram A post shared by Birna Eiríksdóttir (@birnaruneiriks) Stelpukvöld í Reykjavík Vinkonurnar og raunveruleikastjörnurnar Birgitta Líf Björnsdóttir og Sunneva Einarsdóttir fór út á lífið um helgina og létu veðrið ekki stoppa sig í klæðnaði. View this post on Instagram A post shared by Birgitta Li f Björnsdóttir (@birgittalif) View this post on Instagram A post shared by Sunneva Eir Einarsdo ttir (@sunnevaeinarss) Ástrós Trausta dansari og áhrifavaldur mætti í smart leðurrykfrakka út á lífið. View this post on Instagram A post shared by Astros Traustadottir. (@astrostraustaa) Glimmerþingkona í miðbænum Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar, klæddi sig eftir veðri þegar sólin skein í vikunni og gekk um götur borgarinnar í glitrandi og smart í glimmerjakka. View this post on Instagram A post shared by B R Y N J A D A N (@brynjadan) Fæðingarorlofið fært til Köben Elísabet Gunnars, áhrifavaldur og tískuskvísa, skrapp til Kaupmannahafnar með Önnu Fríðu Gísladóttur, forstöðumanni markaðsmála hjá Play, þar sem sólin skein sínu skærasta. Báðar eru þær í fæðingarorlofi og virtust þær eiga ljúfa stund með litlu krílunum með kaffi í hönd í fallegum almenningsgarði. View this post on Instagram A post shared by Eli sabet Gunnars (@elgunnars) View this post on Instagram A post shared by Eli sabet Gunnars (@elgunnars) Kampavín í Stokkhólmi Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró, biður Ísland um að rífa sig í gang. Á meðan sleikir hann sólina í Stokkhólmi í Svíþjóð með kampavínsglas í hönd. View this post on Instagram A post shared by G U M M I - K Í R Ó (@gummikiro) Jón Dagur Þorsteinsson og Soffía Gunnarsdóttir nefndu litlu prinsessuna sína Díönu Lilju um helgina. Misstum við af einhverju sem hefði átt að rata í Stjörnulífið? Sendu okkur línu á lifid@visir.is. Fullum trúnaði heitið.
Stjörnulífið Ástin og lífið Tengdar fréttir Stjörnulífið: Tímamót, afmælisveislur og dýflissupartí Liðin vika var sannkölluð partívika þar sem fögnuðir af ýmsum tagi voru áberandi á samfélagsmiðlum. Nafnaveisla, útskrift og afmæli bera þar hæst. 22. maí 2023 08:09 Stjörnulífið: Gellufrí, Eurovision og Björk fékk sér ís Liðin vika einkenndist af Eurovision, suðrænni skemmtun, skvísulátum og almennri gleði. Þar má nefna árshátíð Þjóðleikhússins sem fór fram í Barcelona og virtist hin glæsilegasta, vinkonuhópar skemmtu sér á tónleikum poppstjörnunnar Beyoncé í Stokkhólmi og þemaafmæli Egils Einarssonar, Gillz, í anda norsku þáttaraðanna Exit á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ. Svo fékk Björk Guðmundsdóttir sér ís. 15. maí 2023 08:01 Stjörnulífið: Gæsun, GusGus og gleði Reykjavíkurborg iðaði af menningu og lífi um helgina í tilefni af HönnunarMars og áhrifavaldar landsins nutu sín í botn á hinum ýmsu viðburðum. Mikið var um árshátíðir og veisluhöld og hljómsveitin GusGus hélt ferna tónleika á Nasa, þar sem stiginn var trylltur dans. Margir fylgdust svo grant með krýningu Karls III Bretakonungs og klæddu sig upp í tilefni af því. 8. maí 2023 10:32 Stjörnulífið: Árshátíð RÚV, frumsýningar og tímamót Sumarið gekk loksins formlega í garð í síðustu viku og af samfélagsmiðlum að dæma tóku landsmenn því fagnandi. Mikið var um veisluhöld um helgina en fyrirtæki á borð við RÚV og Bestseller héldu stórar árshátíðir. 24. apríl 2023 12:33 Stjörnulífið: Bumbumyndir, búbblur og Bubbi í brauðtertugerð Páskahelgin er að baki og nutu vonandi sem flestir sín vel. Fjölmargir nutu páskanna á skíðum, á meðan aðrir skelltu sér til Ísafjarðar á Aldrei fór ég suður eða höfðu það huggulegt uppi í bústað. 11. apríl 2023 12:02 Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Laufey fær eigin God of War leik Leikjavísir Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Fleiri fréttir Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Sjá meira
Stjörnulífið: Tímamót, afmælisveislur og dýflissupartí Liðin vika var sannkölluð partívika þar sem fögnuðir af ýmsum tagi voru áberandi á samfélagsmiðlum. Nafnaveisla, útskrift og afmæli bera þar hæst. 22. maí 2023 08:09
Stjörnulífið: Gellufrí, Eurovision og Björk fékk sér ís Liðin vika einkenndist af Eurovision, suðrænni skemmtun, skvísulátum og almennri gleði. Þar má nefna árshátíð Þjóðleikhússins sem fór fram í Barcelona og virtist hin glæsilegasta, vinkonuhópar skemmtu sér á tónleikum poppstjörnunnar Beyoncé í Stokkhólmi og þemaafmæli Egils Einarssonar, Gillz, í anda norsku þáttaraðanna Exit á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ. Svo fékk Björk Guðmundsdóttir sér ís. 15. maí 2023 08:01
Stjörnulífið: Gæsun, GusGus og gleði Reykjavíkurborg iðaði af menningu og lífi um helgina í tilefni af HönnunarMars og áhrifavaldar landsins nutu sín í botn á hinum ýmsu viðburðum. Mikið var um árshátíðir og veisluhöld og hljómsveitin GusGus hélt ferna tónleika á Nasa, þar sem stiginn var trylltur dans. Margir fylgdust svo grant með krýningu Karls III Bretakonungs og klæddu sig upp í tilefni af því. 8. maí 2023 10:32
Stjörnulífið: Árshátíð RÚV, frumsýningar og tímamót Sumarið gekk loksins formlega í garð í síðustu viku og af samfélagsmiðlum að dæma tóku landsmenn því fagnandi. Mikið var um veisluhöld um helgina en fyrirtæki á borð við RÚV og Bestseller héldu stórar árshátíðir. 24. apríl 2023 12:33
Stjörnulífið: Bumbumyndir, búbblur og Bubbi í brauðtertugerð Páskahelgin er að baki og nutu vonandi sem flestir sín vel. Fjölmargir nutu páskanna á skíðum, á meðan aðrir skelltu sér til Ísafjarðar á Aldrei fór ég suður eða höfðu það huggulegt uppi í bústað. 11. apríl 2023 12:02