Fótbolti

Ingi­björg á­fram tap­laus á toppnum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ingibjörg spilaði allan leikinn.
Ingibjörg spilaði allan leikinn. Vålerenga

Ingibjörg Sigurðardóttir og stöllur í Vålerenga eru áfram taplausar á toppi norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Røa.

Ingibjörg var á sínum stað í þriggja manna vörn toppliðsins en að voru gestirnir sem komust yfir um miðbik fyrri hálfleiks. Vålerenga lét það ekki á sig fá og jafnaði Karina Sævik metin undir lok fyrri hálfleiks.

Thea Bjelde kom heimaliðinu svo yfir eftir rúma klukkustund og þar við sat, lokatölur 2-1 Vålerenga í vil.

Situr liðið nú með 23 stig í efsta sæti á meðan Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur í Rosenborg eru með 17 stig en eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×