Viðskipti erlent

Sænsk flugvélaleiga kaupir fjörutíu rafmagnsflugvélar

Kristján Már Unnarsson skrifar
ES-30 rafmagnsflugvélin sýnd í litum Rockton-flugvélaleigunnar.
ES-30 rafmagnsflugvélin sýnd í litum Rockton-flugvélaleigunnar. Teikning/Heart Aerospace

Sænska flugvélaleigan Rockton hefur samið um kaup á allt að fjörutíu rafmagnsflugvélum af gerðinni ES-30 frá sænska flugvélaframleiðandanum Heart Aerospace. Með samningnum breytti Rocton fyrri viljayfirlýsingu í skuldbindandi kaupsamning um tuttugu flugvélar og um kauprétt á tuttugu flugvélum til viðbótar.

Icelandair horfir einnig til þessarar sömu flugvélar til að ryðja brautina í orkuskiptum í íslenska innanlandsfluginu og undirritaði síðastliðið haust viljayfirlýsingu við Heart Aerospace um kaup á allt að fimm þrjátíu sæta ES-30 flugvélum. Áður hafði Icelandair ásamt fleiri aðilum í fluggeiranum gert samstarfssamning við sænska flugvélaframleiðandann um þróun rafmagnsflugvélar sem gæti þjónað styttri flugleiðum.

ES-30 flugvélin í litum Icelandair.Heart Aerospace

Stefnt er að því að ES-30 flugvélin fari í notkun árið 2028. Heart Aerospace tilkynnti í fyrra að hún yrði tvinnvél en ekki eingöngu rafmagnsvél til að auka flugdrægi hennar. Hún mun þó fullsetin þrjátíu farþegum geta þjónað flugvöllum í tvöhundruð kílómetra fjarlægð eingöngu á rafmagni, auk þess að hafa tilskilið lágmarks varaafl. Tvinn-viðbótin með sjálfbæru flugvélaeldsneyti eykur flugdrægið upp í fjögurhundruð kílómetra og upp í áttahundruð kílómetra ef farþegar um borð eru 25 talsins.

„Áhugi og þörf flugiðnaðarins til sjálfbærra orkuskipta eykst dag frá degi og ES-30 er vænlegasta tæknin sem til er fyrir styttri flugleiðir. Tvinn-uppsetning hennar gerir kleift að hafa nauðsynlegt drægi og burðargetu fyrir atvinnuflugmarkaðinn og flugvélin verður stöðugt uppfærð eftir því sem ný endurbætt rafhlöðutækni verður fáanleg,“ segir Niklas Lund, framkvæmdastjóri Rockton.

„Norðurlönd verða leiðandi í innleiðingu rafflugs og þar er þegar byrjað á nokkrum innviðaverkefnum. Sem sænskt leigufyrirtæki ætlar Rockton klárlega að vera hluti af þessum brautryðjendaanda og við erum ánægð með að hafa þá sem samstarfsaðila,“ segir Simon Newitt, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Heart Aerospace í tilkynningu frá félaginu.

Þar kemur fram að Heart Aerospace hafi núna samtals 250 fastar pantanir í ES-30, með valréttum og kauprétti fyrir 120 flugvélum til viðbótar. Félagið hafi þar að auki viljayfirlýsingar um 91 flugvél til viðbótar.

Tölvuteiknað myndband af ES-30 flugvélinni í litum Icelandair var sýnt í þessari frétt Stöðvar 2 síðastliðið haust:


Tengdar fréttir

Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum

Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar.

Magnað að sjá bara vatnsgufu úr hreyflinum en enga mengun

Stórri farþegaflugvél, sömu gerðar og Icelandair notar í innanlandsfluginu, hefur í fyrsta sinn í sögunni verið flogið á vetni. Fulltrúi Icelandair var viðstaddur þetta tímamótaflug vestanhafs en þetta er meðal þeirra lausna sem félagið skoðar til orkuskipta í fluginu á Íslandi.

For­setinn fyrstur far­þega í raf­magns­flug­vél

Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 

Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku

Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×