PlayStation 5 slær Xbox 360 við Samúel Karl Ólason skrifar 11. nóvember 2025 16:05 Sérstök Ghost of Yōtei útgáfa af PlayStation 5. Getty/Stanislav Kogiku, SOPA Japanska fyrirtækið Sony hefur selt 84,2 milljónir eintaka af PlayStation 5 leikjatölvunni. Þannig hefur tölvan formlega tekið fram úr Xbox 360 leikjatölvunni og öllum öðrum leikjatölvum Microsoft í gegnum árin.
Samkvæmt ársfjórðungsuppgjöri Sony, sem nær til annars fjórðungs þessa árs, seldust 3,9 milljónir eintaka á tímabilinu, samanborið við 3,8 milljónir á sama tímabili í fyrra. Í frétt IGN segir að Microsoft hafi síðast gefið út sölutölvur fyrir Xbox 360, sem kom út árið 2005, árið 2016. Þá hafi um 84 milljónir eintaka selst. Líklegt sé að síðan þá hafi fleiri selst en engar formlegar upplýsingar séu til sem sanni það. Því sé PS5 búin að taka sætið af Xbox 360. Sjá einnig: PlayStation 5 Pro - Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því PS5 er þrátt fyrir allt sú meginleikjatölva Sony sem selst hefur í fæstum eintökum og er það að hluta til vegna þess að eldri tölvurnar hafa verið mun lengur í hillum verslana. Sony seldi 102,4 milljónir eintaka af upprunalegu PlayStation tölvunni. Þá voru seld rúmlega 160 milljón eintök af PS2, 87,4 milljón eintök af PS3 og rúmlega 117 milljón eintök af PS4. Forsvarsmenn fyrirtækisins tilkynntu þó fyrr í haust að PS5 væri sú tölva sem fyrirtækið hefði hagnast mest á í gegnum árin. Uppgjör Sony fór fram úr væntingum fjárfesta, samkvæmt frétt Wall Street Journal en samhliða birtingu uppgjörsins, sem finna má hér, hækkuðu forsvarsmenn fyrirtækisins tekjuspár sínar fyrir þriðja ársfjórðung. Er það bæði vegna þess að tollar Donalds Trump eru sagðir hafa haft minni áhrif en óttast var og vegna velgengni kvikmyndarinnar KPop Demon Hunters.
Sony Japan Mest lesið Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira