Íslenski boltinn

KR-ingar spila heimaleikinn sinn á Seltjarnarnesi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ægir Jarl Jónasson og félagar í KR fá loksins heimaleik í fimmtu umferð en hann er spilaður í öðru bæjarfélagi.
Ægir Jarl Jónasson og félagar í KR fá loksins heimaleik í fimmtu umferð en hann er spilaður í öðru bæjarfélagi. Vísir/Diego

KR-völlurinn er ekki tilbúinn eins og flestir grasvellir á landinu. KR-ingar þurftu því að færa heimaleik sinn á móti HK í Bestu deild karla.

KR ákvað að leita til nágranna sína í Gróttu og heimaleikur KR-liðsins á móti Gróttu mun því fara fram á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi klukkan 19.15 annað kvöld.

Þetta er fyrsti heimaleikur KR-inga í sumar því þeir hafa spilað fyrstu fjóra heimaleiki sína í deildinni á útivelli, á Akureyri, í Keflavík í Víkinni og í Hafnarfirði.

KR hefur náð í fjögur stig út úr fyrstu fjórum leikjum sínu en liðið hefur farið stigalaust út úr tveimur síðustu leikjum.

Allir sex leikir fimmtu umferðar fara því fram á gervigrasi en einu grasleikir tímabilsins hafa farið fram í Vestmannaeyjum og á Miðvellinum í Hafnarfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×