Breiðablik lánar Eyþór Aron Wöhler til nágranna sinna í HK Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. apríl 2023 17:45 Eyþór Aron samdi við Breiðablik síðasta haust. Breiðablik Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa ákveðið að lána framherjann Eyþór Aron Wöhler til HK. Þetta herma öruggar heimildir Vísis.
Eyþór Aron Wöhler samdi við Íslandsmeistara Breiðablik síðasta haust eftir að hafa spilað með ÍA í Bestu deild karla í knattspyrnu síðasta sumar. Þó ÍA hafi fallið þá spilaði Eyþór Aron nægilega vel til að Breiðablik vildi fá hann í sínar raðir. Mikið hefur verið rætt og ritað um stóran hóp Breiðabliks og nú hefur þjálfarateymið tekið þá ákvörðun að lána Eyþór Aron upp í efri byggðir Kópavogs. Nýliðar HK taka honum fagnandi þar sem liðið er heldur fámennt fram á við þó það hafi ekki komið að sök til þessa á leiktíðinni. Eyþór Aron hefur aðeins komið sögu í einu af þremur leikjum Breiðabliks í Bestu deildinni á leiktíðinni en hann tapaði boltanum í aðdraganda sigurmarks HK í dramatískum 4-3 sigri nýliðanna á Breiðablik í 1. umferð deildarinnar. Framherjinn spilaði svo klukkustund í 2-0 sigri á Lengdjudeildarliði Fjölnis í Mjólkurbikarnum en mun nú spila með HK það sem eftir lifir tímabils. Hafði HK betur í baráttunni við Fylki og ÍBV en bæði lið vildu fá leikmanninn í sínar raðir. HK er í 4. sæti Bestu deildar með 4 stig að loknum þremur umferðum á meðan Breiðablik er í 8. sæti með 3 stig.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Breiðablik HK Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira