Lífið

Strictly-dómarinn Len Goodman er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Len Goodman var dómari bæði í Strictly Come Dancing og Dancing with the Stars.
Len Goodman var dómari bæði í Strictly Come Dancing og Dancing with the Stars. Getty

Breski dansarinn Len Goodman, sem um árabil var formaður dómnefndarinnar í bresku dansþáttunum Strictly Come Dancing, er látinn, 78 ára að aldri.

Breskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag og vísa í orð umboðsmanns Goodman. Hann lést á líknardeild í Kent eftir glímu við beinkrabbamein.

Goodman sat í dómnefnd þáttanna Strictly Come Dancing frá upphafi þáttanna árið 2004 til 2016 og vakti athygli fyrir kaldhæðnislegar athugasemdir og yfirvegaða gagnrýni.

Goodman sat einnig í dómarasætinu í bandarískri útgáfu þáttanna, Dancing with the Stars, á árunum 2005 til 2022, en auk þess rak Goodman um árabil dansskóla í Dartford í Kent.

Þættirnir svipa til íslensku þáttanna Allir geta dansað, sem sýndir voru á Stöð 2, þar sem danspör, sem samanstanda af einum frægum einstaklingi og atvinnudansara, keppa um sigur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×