„Ég hef spilað á mun verri völlum í efstu deild“ Valur Páll Eiríksson skrifar 14. apríl 2023 19:00 Miðvöllur, hvar FH mun mæta Stjörnunni á morgun. Vísir/Einar FH mætir Stjörnunni á morgun í Bestu deild karla í fótbolta á Miðvelli, frjálsíþróttavelli félagsins, sem stendur fyrir ofan Kaplakrika á FH-svæðinu. FH-ingar haffa unnið hörðum höndum við að gera völlinn kláran fyrir leikinn.
Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH, skoðaði völlinn með fréttamanni í dag og við fengum innsýn í vinnuna sem liggur að baki fyrir morgundaginn. Hann hefur ekki áhyggjur af meiðslahættu leikmanna, frekar en á öðrum völlum. Völlurinn sé sléttur og hann hafi sjálfur spilað á verri völlum í deildinni í gegnum tíðina. Klippa: Innlit á Miðvöll Aðspurður um meiðslahættu segir hann: „Nei, ekkert frekar en maður hefur venjulega áhyggjur af því að einhver meiðist. Þetta er nokkuð sléttur völlur og ég hef spilað á mun verri völlum en þetta í fyrstu umferðum í efstu deild,“ Davíð Þór hrósar sjálfboðaliðum sem hafa aðstoðað FH-inga við að koma vellinum í almennilegt stand í hástert. Þeir hafa sett upp rúmlega 300 manna stúku við völlinn með sætum sem hafa verið færð úr stúkunni við Kaplakrika yfir hæðina. Þá þurfti að fara í ákveðnar aðgerðir vegna hola sem hafa gert vart við sig eftir köst sleggjukastara út á grasið en Davíð segir vel hafa verið fyllt í og menn þurfi engar áhyggjur að hafa fyrir morgundaginn. Innslag þar sem litið er á völlinn og rætt við Davíð Þór má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan. FH og Stjarnan mætast klukkan 16:00 á Miðvelli á morgun. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Besta deild karla FH Stjarnan Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira