Fótbolti

Stuðningsmenn PSG bauluðu á Messi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi og félagar í Paris Saint-Germain töpuðu sínum áttunda leik á árinu í gær.
Lionel Messi og félagar í Paris Saint-Germain töpuðu sínum áttunda leik á árinu í gær. getty/Catherine Steenkeste

Stuðningsmenn Paris Saint-Germain bauluðu á Lionel Messi fyrir leik Frakklandsmeistaranna gegn Lyon í gær.

Lyon vann leikinn með einu marki gegn engu. Þetta var sjöunda tap PSG á árinu 2023. Liðið er samt enn með sex stiga forskot á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar.

Þegar liðin voru kynnt fyrir leikinn í gær baulaði hluti stuðningsmanna PSG þegar nafn Messis var lesið upp.

Samningur Argentínumannsins við PSG rennur út eftir tímabilið og óvíst er hvort hann verður áfram hjá félaginu. Hann hefur meðal annars verið orðaður við endurkomu til Barcelona. 

Messi kom til PSG fyrir síðasta tímabil. Á tíma hans hjá félaginu hefur það ekki komist lengra en í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×