Innlent

Ráðherra njóti ekki trausts og verði að víkja: „Hér er enginn hafinn yfir lög eða reglur“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar, þingflokksformaður Pírata og formaður Flokks fólksins færðu rök fyrir vantrauststillögunni gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra í dag. 
Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar, þingflokksformaður Pírata og formaður Flokks fólksins færðu rök fyrir vantrauststillögunni gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra í dag.  Vísir/Samsett

Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna fjögurra sem lögðu fram vantrauststillögu á dómsmálaráðherra í dag segja ljóst að ráðherrann hafi brotið lög og að honum sé ekki treystandi. Þingflokksformaður Pírata segir að ef ekkert verði gert setji það fordæmi sem sé ekki aðeins hættulegt heldur beinlínis andstætt stjórnskipun lýðveldisins. Formaður Flokks fólksins segir engan hafinn yfir lög á Alþingi, hvað þá ráðherra. 

Þingflokksformenn Pírata, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins lögðu í dag fram vantrausttillögu á Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra þar sem hann hafi komið í veg fyrir að Alþingi fengið nauðsynleg gögn til lagasetningar. 

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, sagði í ræðu sinni á Alþingi í dag að ráðherrann hafi brotið gegn einni af grunnstoðum þingræðisins og gegn upplýsingarétti Alþingis. Um væri að ræða grafalvarlegt brot sem þingið mætti ekki láta yfir sig ganga.

„Við erum lýðveldi með þingbundinni stjórn og það má ekki leyfa ráðherrum að taka sér það vald að velja hvaða upplýsingar þeim finnst þingið eiga rétt á að fá og hverjar ekki. Ef við samþykkjum það einu sinni erum við að setja fordæmi sem er ekki bara hættulegt heldur beinlínis andstætt stjórnskipun lýðveldisins Íslands,“ sagði Þórhildur.

„Ógeðfelld afvegaleiðing“ ráðherra ekki það sem tillagan snúist um

Mikil umræða skapaðist um málið á þinginu í gær en þar var ráðherrann sakaður um að hafa brotið í bága við 51. grein þingskapalaga með því að afhenda Alþingi ekki gögn frá Útlendingastofnun um veitingu ríkisborgararéttar haustið 2021, sem nefndarmenn allsherjar- og menntamálanefndar höfðu ítrekað kallað eftir.

Alþingi vantrauststillaga á Jón Gunnarsson lögð fram - Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður PírataVísir/Vilhelm

Ráðherrann svaraði því á þann veg að það hafi alltaf staðið til að afhenda gögnin en að fjöldinn hafi tafið fyrir. Aftur á móti sagðist hann vilja skoða möguleg tengsl nefndarfólks við umsækjendur og hvort hinir fyrrnefndu hefðu fengið einhverja þakklætisvotta fyrir vitið.

Þó þessi ummæli hafi vakið mikla reiði meðal þingmanna sagði Þórhildur að tillagan snerist um að verja grundvallarstjórnskipan Íslands frekar en einstaka mál.

„Hún snýst ekki um veitingu ríkisborgararéttar, hún snýst ekki um Útlendingastofnun. Hún snýst ekki um útlendinga, hvað sem hver segir. Allra síst snýst hún um dylgjur dómsmálaráðherra í garð þingmanna allsherjar- og menntamálanefndar, sem er ein ógeðfelldasta afvegaleiðing sem ég hef orðið vitni að,“ sagði Þórhildur.

„Þessi tillaga snýst um það að ráðherra sem brýtur jafn freklega gegn upplýsingarétti almennings getur ekki, má ekki og á ekki að njóta trausts þess sama Alþingis,“ sagði hún enn fremur og tóku aðrir þingmenn stjórnarandstöðunnar í sama streng.

Meirihlutinn beri ábyrgð líkt og ráðherrann

Alþingi vantrauststillaga á Jón Gunnarsson lögð fram - Andrés Ingi Jónsson, þingmaður PírataVísir/Vilhelm

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, sagði ráðherrann vanvirða Alþingi með því að koma í veg fyrir að Alþingi geti sinnt lögbundnum störfum sínum. Annar þingmaður Pírata, Andrés Ingi Jónsson, sagði þau hafa orðið vitni af „aumasta yfirklóri Íslandssögunnar“ í gær þegar tveir ráðherrar mættu í pontu.

„Mættu þeir báðir, dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra, gráir fyrir járnum og sögðu að þetta væri nú ekkert tiltökumál, þingið gæti bara étið það sem úti frýs og ráðherrann gert það sem honum sýnist. Það er alveg ljóst að það er engin auðmýkt á þeim bænum, það er einskis að vænta frá Sjálfstæðisflokknum í að standa með Alþingi í þessum slag fyrir þingræðinu,“ sagði Andrés Ingi.

Alþingi vantrauststillaga á Jón Gunnarsson lögð fram - Helga Vala Helgadóttir, þingmaður SamfylkingarinnarVísir/Vilhelm

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði mikilvægt að kjörnir fulltrúar virði skýrar reglur um lagalega ábyrgð ráðherra, en pólitísk ábyrgð þeirra gagnvart þinginu lýsi sér þannig að þeir sitji í krafti meirihluta þingmanna.

„Þannig má segja að hin pólitíska ábyrgð ráðherra smitist yfir á þingmenn sem veita ráðherra stuðning. Þingræðisregla stjórnarskrárinnar er skýr með þetta. Á meðan meiri hluti þings ver sinn ráðherra ber allur meiri hlutinn ábyrgð á ráðherranum, ekki bara flokkssystkin ráðherrans,“ sagði Helga Vala.

Enginn hafinn yfir lög

Alþingi vantrauststillaga á Jón Gunnarsson lögð fram - Sigmar Guðmundsson, þingmaður ViðreisnarVísir/Vilhelm

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, sagði aðeins gripið til vantrausts þegar mikið liggi við en hann sagði dómsmálaráðherra hafa ekki aðeins brotið lög, heldur væri lögbrotið atlaga að þingræðinu í landinu. Sé hann ósáttur við lög þurfi hann að breyta þeim en ekki brjóta.

„Nú þurfa þingmenn allir, sama hvar þeir í flokki eru, sama hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, að standa vörð um þingræðið í landinu. Ráðherra getur ekki valið eftir hvaða lögum hann ætlar að fara. Hann getur ekki skammtað Alþingi upplýsingar af eigin geðþótta. Ráðherra á aldrei að hindra Alþingi í störfum sínum. Ráðherra má aldrei hindra Alþingi í störfum sínum. Ráðherra sem það gerir verður að víkja,“ sagði Sigmar.

Alþingi vantrauststillaga á Jón Gunnarsson lögð fram - Inga Sæland, formaður Flokks fólksinsVísir/Vilhelm

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, tók loks til máls þar sem hún sagðist seint hafa trúað því að þetta yrði staðan en staðan væri engu að síður sú að ráðherrann gangi fram með geðþóttaákvörðun og ákveði að hann sé hafinn yfir lög og reglur.

„Hér er enginn hafinn yfir lög og reglur, hvorki hæstvirtur dómsmálaráðherra né nokkurt annað okkar hér. En það að ætla að stíga svona freklega inn í störf löggjafans, hindra okkur í starfi, koma í veg fyrir að við fáum þau gögn sem lögbundið er skv. 51. grein þingskapalaga — það er algerlega skýrt að ráðherrann hefur ekkert umboð og enga heimild til að búa til sérreglur um sjálfan sig og sinn geðþótta. Hann á vinsamlega að fylgja lögum eins og aðrir,“ sagði Inga.


Tengdar fréttir

Finnst réttast að dóms­mála­ráð­herra stígi til hliðar

Stjórnarandstaðan íhugar nú hvaða skref verða stigin til að draga dómsmálaráðherra til ábyrgðar eftir að skrifstofa þingsins fjallaði um í minnisblaði að honum væri skylt að afhenda þinginu upplýsingar innan tiltekins frests í máli sem tengist veitingu ríkisborgararéttar. Þingflokksformaður Pírata finnst réttast að ráðherrann stígi til hliðar.

„Þeir koma hér trekk í trekk með lygina að vopni“

Fjórir nefndarmenn og áheyrnarfulltrúi allsherjar- og menntamálanefndar báru af sér sakir á Alþingi í dag. Þingmennirnir fundu sig knúna til að gera það eftir að dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn og aðra alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt.

Sakar nefndar­menn á Al­þingi um að þiggja gjafir frá hælis­leit­endum

Dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn allsherjar- og menntamálanefndar og aðra Alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem þingið hefur veitt ríkisborgararétt. Nefndin hefur sakað ráðherrann um að hafa brotið lög með því að koma í veg fyrir að Útlendingastofnun afhendi gögn í tengslum við veitingu á ríkisborgararétt. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×