Fótbolti

Valur enn með fullt hús eftir nauman sigur | Markalaust í Garðabæ

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valsmenn fagna sigri kvöldsins.
Valsmenn fagna sigri kvöldsins. Vísir/Diego

Valur vann nauman 1-0 sigur er liðið tók á móti HK í A-deild Lengjubikars karla í kvöld og á sama tíma gerðu Stjarnan og Fram markalaust jafntefli.

Það stefndi allt í að leikur Vals og HK myndi einnig ljúka með markalausu jafntefli, en Lúkas Logi Heimisson reyndist hetja heimamanna þegar hann skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Niðurstaðan því 1-0 sigur Valsmanna sem enn eru með fullt hús stiga eftir fjóra leiki í riðli eitt í Lengjubikarnum. HK-ingar sitja hins vegar í þriðja sæti riðilsins með sex stig.

Þá gerðu Stjarnan og Fram markalaust jafntefli í riðli þrjú á sama tíma eins og áður segir. Stjörnumenn sitja í öðru sæti riðilsins með átta stig eftir fimm leiki, þremur stigum meira en Fram sem situr í þriðja sæti og hefur leikið einum leik minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×