Lífið

Gátu ekki hætt að kyssast

Bjarki Sigurðsson skrifar
Kaia Gerber og Austin Butler í umræddri veislu.
Kaia Gerber og Austin Butler í umræddri veislu. Getty/Presley Ann

Elvis-leikarinn Austin Butler og kærasta hans, Kaia Gerber, gátu ekki sleppt hvoru öðru í veislu W-tímaritsins í Los Angeles um helgina. Fjöldi stjarna var samankominn í veislunni. 

Um er að ræða stóra veislu W-tímaritsins sem haldið er einu sinni á ári. Þar mættu margar af aðal stjörnum ársins 2022 í Hollywood. Meðal gesta voru Ruben Östlund, leikstjóri Triangle of Sadness, Kate Hudson og Madelyn Cline sem léku í Glass Onion: A Knives Out Mystery og Austin Butler.

Butler er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Elvis þar sem hann fer með hlutverk söngvarans Elvis Presley. Hann mætti með kærustu sinni, ofurfyrirsætunni Kaia Gerber, og samkvæmt heimildarmönnum PageSix voru þau að kyssast allt kvöldið. Gerber er dóttir fyrirsætunnar Cindy Crawford og Rande Gerber. 

Parið er afar ástfangið en þau sáust fyrst saman í desember árið 2021. Fyrir það var Butler í sambandi með leikkonunni Vanessa Hudgens í átta ár. Tíu ára aldursmunur er á þeim, Butler verður 32 ára á árinu en Kaia 22 ára. 


Tengdar fréttir

Mæðgurnar sýndu saman á tískupallinum í gær

Mæðgurnar Cindy Crawford og Kaia Gerber gengu báðar á tískupallinum fyrir Off-White kvennfatnaðar sýninguna sem haldin var í gær sem partur af tískuvikunni í París. Fleiri stjörnur með fjölskyldutengsl komu einnig fram á pallinum eins og Hadid systurnar.

Butler leikur Elvis í nýrri mynd um líf kóngsins

Bandaríski leikarinn Austin Butler greindi frá því í gær að hann hafi orðið manna hlutskarpastur í baráttunni um hlutverk kóngsins, Elvis Presley, í væntanlegri kvikmynd byggðri á ævi söngvarans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×