Menning

Eva Olli­ka­inen á­fram aðal­hljóm­sveitar­stjóri Sinfó

Atli Ísleifsson skrifar
Lára Sóley Jóhannsdóttir og Eva Ollikainen undirrituðu nýjan samning á æfingu í Eldborg.
Lára Sóley Jóhannsdóttir og Eva Ollikainen undirrituðu nýjan samning á æfingu í Eldborg. Sinfó

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur endurnýjað samning sinn við Evu Ollikainen sem gegnt hefur stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda síðastliðin þrjú ár. Samningurinn hefur verið framlengdur til loka starfsársins 2025-26.

Í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveit Íslands segir að Eva muni að jafnaði stjórna hljómsveitinni á sex til átta tónleikum á hverju starfsári auk þess að stjórna sveitinni á tónleikaferðum innanlands sem utan, meðal annars í Bretlandsferð sem farin verður í apríl á þessu ári. 

„Auk þess mun Eva áfram stýra hljómsveitarstjóra-akademíu Sinfóníuhljómsveitar Íslands en hún hafði einmitt frumkvæði að stofnun hennar árið 2021.

Eva Ollikainen stundaði tónlistarnám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki og hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim fyrir innblásna hljómsveitarstjórn. Hún hefur stjórnað mörgum virtustu hljómsveitum heims, m.a. Útvarpshljómsveitunum í Finnlandi og Svíþjóð, Fílharmóníusveitunum í Helsinki og Stokkhólmi og Sinfóníuhljómsveitinni í Vínarborg. Þá hefur hún stjórnað óperusýningum við Dönsku þjóðaróperuna og Staatskapelle í Dresden. Á síðasta ári stjórnaði Eva Fílharmóníusveit breska ríkisútvarpsins BBC á PROMS-tónlistarhátíðinni í Lundúnum og Fílharmóníusveit Los Angeles í fyrsta sinn á tvennum tónleikum í Hollywood Bowl og í Walt Disney Hall,“ segir í tilkyningunni. 

Náðu tónlistarlegri tengingu um leið

Haft er eftir Evu að það sé sér enn í fersku minni þegar hún kom í fyrsta sinn til þess að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2005. 

„Ég man hvernig við hljómsveitin náðum tónlistarlegri tengingu um leið – þetta var eitt af bestu augnablikum ævi minnar. Þessi djúpa tónlistarlega tenging hefur haldist traust. Margir af þeim sem spila með hljómsveitinni í dag voru ekki byrjaðir þá, og einhverjir hafa horfið á braut, en andi hljómsveitarinnar er enn hinn sami. Ég nýt hverrar sekúndu í starfi mínu með þessu frábæra tónlistarfólki og hlakka til allra töfrastundanna sem við eigum framundan í tónlistinni. Ég vil þakka tónlistarmönnum, starfsfólki og stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir traustið.“

Tók við á sérstökum tíma

Þá er haft eftir Láru Sóleyju framkvæmdarstjóra að Eva hafi tekið við sem aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi á afar sérstökum tíma, í miðjum heimsfaraldri. „Þó svo að fyrstu tvö starfsár hennar í þessum hlutverkum hafi verið krefjandi, færðu þau samvinnu okkar líka dýrmæt tækifæri. Eva vann náið með hljómsveitinni í lengri tímabil en gengur og gerist og myndaði mikilvæg tengsl við hljóðfæraleikara og samstarfsfólk. Eva átti frumkvæði að því að stofnuð var hljómsveitarstjóra-akademía haustið 2021 þar sem ungt og efnilegt tónlistarfólk fær tækifæri til þess að spreyta sig í hljómsveitarstjórn. Ég er þess fullviss að þetta mikilvæga tækifæri sem unga kynslóðin fær, mun skila okkur miklu til framtíðar. Eva er einstök listakona sem gefur mikið af sér, bæði til samstarfsfólks, samfélagsins og ekki síst til okkar dyggu áheyrenda. Hún hefur mikinn metnað fyrir íslensku tónlistarlífi og hefur náð frábærum árangri með hljómsveitinni. Við hlökkum til að vaxa og dafna með Evu á komandi árum,“ segir Lára Sóley.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×