Tíu börn á milli sjö og fjórtán ára drukknuðu þegar bát hvolfdi á vatninu Tanda Dam. Ellefu börnum til viðbótar var bjargað en sex liggja þungt haldin á sjúkrahúsi. Níu barna er enn saknað. Þau voru í skólaferðalagi þegar slysið varð.
Þá lést minnst fjörutíu og einn þegar rúta keyrði fram af klöpp og ofan í gljúfur þar sem kviknaði í henni. Aðeins tveir komust lífs af úr rútunni en eru þungt haldnir. Yfirmaður aðgerðarstjórnar á svæðinu óttast að rútubílstjórinn hafi sofnað undir stýri.
Að sögn yfirvalda er ekki hægt að bera kennsl á lík rútufarþeganna með hefðbundnum aðferðum svo grípa verður til erfðatækni til að fá úr um það skorið hverjir hinir látnu voru. Björgunaraðgerðir hafa staðið yfir í dag. Guardian greinir frá.