Fiskistofa hóf að nota dróna við eftirlit á fiskveiðum í janúar 2021. Matvælaráðherra hefur að beiðni stofnunarinnar samþykkt styrk til að til að gera kerfisbundið mat á brottkasti á Íslandsmiðum. Elín Björg Ragnarsdóttir sviðsstjóri veiðieftirlits Fiskistofu fagnar þessari ákvörðun.
„Þetta yrði tilviljanarkennt eftirlit á ákveðnum veiðisvæðum. Við skiptum þá miðunum upp í ákveðin svæði. Við erum einnig að íhuga kaup á langdrægari drónum en þá getum við haft eftirlitið frá landi,“ segir Elín.
Þetta bættist við það eftirlit sem sé nú þegar til staðar.
„Það hefur verið þannig að það er rétt um helmingur þeirra sem flogið hefur verið yfir sem hefur verið staðinn að brottkasti . Vissulega misalvarlegu og- miklu. Það hefur verið nokkuð stöðugt frá því við hófum drónaeftirlitið,“ segir Elín.
Elín telur að verkefnið muni taka um tvö ár. Ástæðan fyrir því að óskað hafi verið eftir styrk frá ráðuneytinu sé að grunur um að brottkast sé enn meira en fram hafi komið hingað til.
„Okkur grunar að brottkastið sé meira en þau þrjú til fimm prósent sem eru opinberar tölur í dag. Þarna erum við komin með nýja tækni sem við myndum nýta til þessara rannsókna,“ segir hún.