Menning

Skúli, Arn­dís, Ragnar og Pedro hrepptu bók­mennta­verð­launin

Jakob Bjarnar skrifar
Arndís Þórarinsdóttir, Ragnar Stefánsson og Pedro Gunnlaugur Garcia hrepptu hin Íslensku bókmenntaverðlaun að þessu sinni og Skúli Sigurðsson hlaut Blóðdropann við sama tækifæri.
Arndís Þórarinsdóttir, Ragnar Stefánsson og Pedro Gunnlaugur Garcia hrepptu hin Íslensku bókmenntaverðlaun að þessu sinni og Skúli Sigurðsson hlaut Blóðdropann við sama tækifæri.

Afhending Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans fór fram á Bessastöðum nú rétt í þessu. Verðlaunin fyrir hvert verk nema einni milljón króna og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda.

Verðlaunahafar eru eftirfarandi:


Blóðdropann hlaut að þessu sinni:

Skúli Sigurðsson

Stóri bróðir

Útgefandi: Drápa

Stóri bróðir eftir Skúla Sigurðsson hlaut Blóðdropann.

Umsögn lokadómnefndar:

Stóri bróðir er haganlega saman sett saga um ofbeldisglæpi og vandlega undirbyggða hefnd með löngum aðdraganda sem flett er ofan af eftir því sem dýpt frásagnarinnar eykst. Fjölbreytt persónusköpun og markviss notkun ólíkra sjónarhorna eykur bæði á spennuna og skýrir hvernig hægt er að réttlæta óhæfuverk fyrir sjálfum sér (og jafnvel láta þau yfir sig ganga án þess að segja frá þeim). Um leið verða knýjandi innri ástæður hefndarinnar trúverðugar. Vel er haldið utan um hina mörgu og saman fléttuðu söguþræði í bland við breiða samfélagslýsingu og afhjúpun á stofnanatengdu ofbeldi gagnvart drengjum – sem á stóran þátt í óhugnaðinum og áhrifamætti sögunnar.


Íslensku bókmenntaverðlaunin skiptast í þrjá flokka og þeir sem að þessu sinni hlutu verðlaunin voru:

Barna- og ungmennabækur:

Arndís Þórarinsdóttir

Kollhnís

Útgefandi: Mál og menning

Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin í flokknum Barna-og ungmennabækur.

Umsögn lokadómnefndar:

Kollhnís segir frá því hvernig ungur drengur upplifir umhverfi sitt og fjölskylduaðstæður sem hann ræður illa við eftir að litli bróðir hans greinist með einhverfu. Sagan er skrifuð af miklu stílöryggi og tekur á erfiðum málum með hæfilegri glettni sem gerir það bæði bærilegt og skemmtilegt að fylgjast með því hvernig sýn fullorðinna afhjúpar þá mynd sem drengurinn gerir sér af þeim sem hann dáist að og tengist vináttu- og tilfinningaböndum – í krafti einlægni sinnar. Samtöl eru sannfærandi og styðja vel við hvernig snúið er upp á ranghugmyndir um fullkomnun og velgengni annarra — sem kallast á við þá viðleitni að feta hina beinu lífsins braut að skilgreindum markmiðum með sviðsettri sjálfsmynd á samfélagsmiðlum.


Fræðibækur og rit almenns efnis:

Ragnar Stefánsson

Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta

Útgefandi: Skrudda

Umsögn lokadómnefndar:

Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta geymir afrakstur ævilangrar glímu við rannsóknir sem hafa beinst að því hvernig spá megi fyrir um jarðskjálfta. Hér eru dregnar saman niðurstöður alþjóðlegrar þekkingarleitar sem skilaði loks þeim árangri að hægt var að spá fyrir um stóran skjálfta á Suðurlandi. Sagan á bak við þennan heimsögulega árangur er sögð með aðgengilegum hætti, vel skrifuðum texta, upplýsandi kortum og skýringarmyndum, án þess að slakað sé á fræðilegum kröfum; uppgötvunarferlinu er haldið til haga og þess gætt að sýna öllum sem að því hafa komið örlæti. Hér getur hvert mannsbarn séð hvernig vísindaleg þekking verður til – á sviði sem varðar almenning miklu – og því er verkið líklegt til að laða ungt fólk að vísindum.


Skáldverk:

Pedro Gunnlaugur Garcia

Lungu

Útgefandi: Bjartur

Umsögn lokadómnefndar:

Lungu er breið fjölskyldusaga margra kynslóða úr ólíkum heimshornum, sem færist smám saman inn á okkar tímaskeið hér á landi en teygir sig líka til framtíðar þegar kynslóðirnar safnast saman í sýndarveruleika sem kallast á við sjálfa alheimssöguna. Hér er sleginn nýr tónn í íslenskri skáldsagnagerð með töfrandi frásagnargleði sem fer áreynslu- og hispurslaust á milli dýpstu tilfinninga og átaka til ævintýralegra gleðistunda með goðsagnakenndu ívafi – þannig að jafnvel mestu hörmungarnar njóta góðs af gleðinni. Sambönd elskenda og kynslóða eru brotin og löskuð en sögur og minningar megna að lýsa upp örlagastundir í lífi þeirra, sýna lesandanum sjálfan lífsneistann og fanga oft kjarnann í langri ævi.


Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi tuttugu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Tilnefningarnar má finna í fréttinni hér neðar:

Lokadómnefnd skipuðu þau Guðrún Steinþórsdóttir, Kamilla Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Skúli Pálsson og Gísli Sigurðsson, sem var formaður nefndarinnar.


Þeir sem hlotið hafa Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann eru:

2007 Stefán Máni

2008 Arnaldur Indriðason

2009 Ævar Örn Jósepsson

2010 Helgi Ingólfsson

2011 Yrsa Sigurðardóttir

2012 Sigurjón Pálsson

2013 Stefán Máni

2014 Stefán Mani

2015 Yrsa Sigurðardóttir

2016 Óskar Guðmundsson

2017 Arnaldur Indriðason

2018 Lilja Sigurðardóttir

2019 Lilja Sigurðardóttir

2020 Sólveig Pálsdóttir

2021 Yrsa Sigurðardóttir

2022 Jónína Leósdóttir

2023 Skúli Sigurðsson

Ártal Blóðdropans miðast við afhendingarár verðlauna en ekki útgáfuár bókar.

Samtals hafa frá upphafi 11 rithöfundar fengið verðlaunin, eftirfarandi oftar en einu sinni: Stefán Máni (3), Yrsa Sigurðardóttir (3), Arnaldur Indriðason (2) og Lilja Sigurðardóttir (2),


Þeir sem hlotið hafa Íslensku bókmenntaverðlaunin eru:

1989 Stefán Hörður Grímsson

1990 Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson

1991 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson

1992 Þorsteinn frá Hamri og Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson

1993 Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson

1994 Vigdís Grímsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir

1995 Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead

1996 Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason

1997 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson

1998 Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson

1999 Andri Snær Magnason og Páll Valsson

2000 Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson

2001 Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir

2002 Ingibjörg Haraldsdóttir og Pétur M. Jónasson, Páll Hersteinsson

2003 Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson

2004 Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson

2005 Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Johannessen, Silja Aðalsteinsdóttir og Eiríkur Þorláksson

2006 Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason

2007 Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson

2008 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson

2009 Guðmundur Óskarsson og Helgi Björnsson

2010 Gerður Kristný og Helgi Hallgrímsson

2011 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson

2012 Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar F. Guðmundsson

2013 Guðbjörg Kristjánsdóttir, Andri Snær Magnason og Sjón

2014 Snorri Baldursson, Bryndís Björgvinsdóttir og Ófeigur Sigurðsson

2015 Gunnar Þór Bjarnason, Gunnar Helgason og Einar Már Guðmundsson

2016 Ragnar Axelsson, Hildur Knútsdóttir og Auður Ava Ólafsdóttir

2017 Unnur Þóra Jökulsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler og

Kristín Eiríksdóttir.

2018 Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir, Jón Baldur Hlíðberg, Sigrún Eldjárn og Hallgrímur Helgason.

2019 Jón Viðar Jónsson, Bergrún Íris Sævarsdóttir og Sölvi Björn Sigurðsson.

2020 Sumarliði R. Ísleifsson, Arndís Þórarinsdóttir, Hulda Sigrún Bjarnadóttir og Elísabet Kristín Jökulsdóttir

2021 Sigrún Helgadóttir, Þórunn Rakel Gylfadóttir og Hallgrímur Helgason

2022 Arndís Þórarinsdóttir, Ragnar Stefánsson og Pedro Gunnlaugur Garcia






Fleiri fréttir

Sjá meira


×