Erlent

Rússar sækja fram í Soledar

Samúel Karl Ólason skrifar
Úkraínskir hermenn að störfum í Donetsk-héraði.
Úkraínskir hermenn að störfum í Donetsk-héraði. Getty/Diego Herrera

Hersveitir Rússa hafa náð árangri gegn Úkraínumönnum í bænum Soledar í austurhluta Úkraínu. Bærinn er norður af Bakhmut en gífurlega harðir bardagar hafa geisað á svæðinu um langt skeið. Rússar hafa reynt að ná Bakhmut í marga mánuði en virðast nú ætla að reyna að umkringja borgina.

Undanfarna daga hafa rússneskir hermenn og málaliðar Wagner group gert harðar atlögur að Soledar og er útlit fyrir að þeir stjórni nú meirihluta bæjarins, þar sem um tíu þúsund manns bjuggu fyrir innrás Rússa í febrúar.

Rússneskir málaliðar birtu í dag myndband sem tekið var upp við ráðhús Soledar. RIA fréttaveitan hefur líka eftir leppstjóra Rússa í Donetsk-héraði að Úkraínumenn hafi orðið fyrir miklu mannfalli og Rússar stjórni miðju bæjarins.

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ræddi átökin í Soledar í ávarpi sínu í gærkvöldi en hann sagði ástandið þá mjög erfitt fyrir úkraínska hermenn. Hann hélt því einnig fram að allt hefði verið eyðilagt á þessu svæði og lík þúsunda Rússa væru á víð og dreif um akrana við Soledar og Bakhmut.

„Svona lítur brjálæði út,“ sagði Selenskí.

AP fréttaveitan segir ráðamenn í Rússlandi ólma í einhvers konar sigur, þar sem hersveitir Rússa hafi lítið sem ekkert sótt fram um mánaðaskeið en þess í stað tapað umfangsmiklum landsvæðum í Úkraínu. Eftir að Rússar hörfuðu frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg, lögðu þeir aukna áherslu á Bakhmut og nærliggjandi bæi.

Helsta markmið Rússa um þessar mundir virðist vera að ná fullum tökum á Donetsk-héraði og Wagner Group spilar stóra rullu. AP hefur eftir vestrænum embættismanni að málaliðar Wagner skipi nú um fjórðung alls herafla Rússlands.

Fall Bakhmut myndi opna leið fyrir Rússa til að sækja fram að hinum mikilvægu bæjum Kramatorsk og Sloviansk. Svæðið er þó mjög víggirt og óljóst er hvort Rússar hafi yfir höfuð burði til að taka bæina, í ljósi þess hvað Bakhmut hefur reynst þeim erfiður biti að kyngja.

Yevgeny Prigozhin, eigandi Wagner og náinn bandamaður Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, sagði í dag að Úkraínumenn verðust af mikilli hörku í Soledar og annarsstaðar við Bakhmut. Hann hélt því fram að hersveitir hans stjórnuðu Soledar að fullu en það hefur ekki verið staðfest. Óstaðfestar fregnir hafa einnig borist af því að um fimm hundruð úkraínskir hermenn séu umkringdir í bænum.

Hér má sjá myndband sem ku hafa verið tekið upp af úkraínskum hermanni í Soledar í morgun.

Prigozhin hefur lengi verið kallaður „kokkur Pútíns“. Hann hefur aukið umsvif sín í rússneskri pólitík í kjölfar innrásar Rússa Í Úkraínu og eru uppi vangaveltur um að hann vilji stilla sér upp sem mögulegum arftaka Pútíns.

Sjá einnig: Kokkur Pútíns segir hvert hús í Bakhmut vera virki

Hóta embættismönnum ákærum

Þá sjást ummerki þess að Rússar eigi við ákveðin vandamál að stríða. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði í dag að reynslan af innrásinni í Úkraínu yrði notuð til að bæta herþjálfun og einnig þyrfti að bæta búnað hermanna og samskiptakerfi.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sló á svipaða strengi í síðasta mánuði.

Sjá einnig: Pútín viðurkennir vandræði og styður stækkun hersins

AP vísar einnig í ummæli Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseta og núverandi varaformanns þjóðaröryggisráðs Rússlands, frá því í dag. Hann sagði varaði embættismenn við því að þeir gætu verið ákærðir nái þeir ekki að standa við tímamörk ríkisstjórnarinnar varðandi framleiðslu hergagna í Rússlandi.

Pútín skipaði Medvedev í síðasta mánuði sem formann nýrrar nefndar sem gera á úrbætur varðandi birgðavanda rússneska hersins. Má þar nefna skort á hergögnum og klæðnaði fyrir hermenn auk skorts á skotfærum fyrir stórskotalið.

Úkraínumenn segja Rússa hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli við Bakhmut en úkraínskir hermenn hafa einnig fallið í átökunum.AP/Evgeniy Maloletka

Mikið minni skothríð

CNN hafði í gærkvöldi eftir embættismönnum í Úkraínu að verulega hefði dregið úr notkun Rússa á stórskotaliði á víglínum í landinu. Frá því þegar mest var hefði skotum fækkað um allt að 75 prósent en það væri þó breytilegt eftir því hvar það væri í Úkraínu.

Talsmaður Úkraínuhers í austri sagði til í sjónvarpsviðtali í dag að Rússar hefðu gert minnst 86 stórskotaliðsárásir á Soledar á undanförnum sólarhring, samkvæmt frétt New York Times. Stórskotaliðsárásum virðist ekki hafa fækkað nærri Bakhmut né við Kremmina, þar sem Úkraínumenn hafa sótt hægt fram á undanförnum vikum.

Hér má sjá myndband sem Rússar birtu í dag og sýnir Lancet-sjálfsprengidróna notaðan til að granda BM-21 Grad stórskotaliðsvopnakerfi í Donetsk-héraði.

Bæði Úkraínumenn og Bandaríkjamenn segja hins vegar of snemmt að staðhæfa að Rússar eigi við skotfæraskort að etja. Minni notkun skotfæraliðsvopna gæti verið tímabundin hluti af breytingum hjá Rússum. Það bendi þó til skorts en sagt var frá því í síðasta mánuði að Rússar væru farnir að nota fjögurra áratuga gömul skot.

Sjá einnig: Farnir að nota fjörutíu ára sprengikúlur

Ráðamenn víða á Vesturlöndum hafa sett af stað átak í að auka framleiðslu á skotfærum fyrir stórskotalið vegna stríðsins í Úkraínu. Vopnasendingar hafa gengið verulega á birgðir Vesturlanda.

Stórskotalið hefur reynst gífurlega mikilvægt bæði Rússum og Úkraínumönnum.

Sjá einnig: Evrópa í basli með skotfærabirgðir og framleiðslu

Aukin hernaðaraðstoð

Útlit er fyrir að Úkraínumenn eigi von á miklu magni hergagna og margvíslegum vopnasendingum á komandi vikum og mánuðum. Vestrænir bakhjarlar eru meðal annars að senda Úkraínumönnum bryndreka frá Bandaríkjunum, Þýskalandi og Frakklandi, stórskotaliðsvopnakerfi frá Svíþjóð og loftvarnarkerfi frá Kanada.

Tékkar eru að uppfæra gamla skriðdreka frá tímum Sovétríkjanna, á kostnað Bandaríkjanna og Hollands, og verða þeir sendir til Úkraínu. Þá eru ráðamenn í Bretlandi sagðir íhuga að senda vestræna skriðdreka í fyrsta sinn til Úkraínu.


Tengdar fréttir

Kallar eftir stigmögnun af hálfu bandamanna

Sir Richard Shirreff, fyrrverandi hershöfðingi hjá Atlantshafsbandalaginu, segir að Bretar hefðu átt að senda Úkraínumönnum skriðdreka fyrir mörgum mánuðum. Bretar íhuga nú að senda Challenger-2 skriðdreka til Úkraínu.

Yfirlýsingar um vopnahlé ekkert nema blekkingar og áróður

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir yfirlýsingar Rússlandsforseta um vopnahlé yfir rússnesku jólahátíðina ekkert annað en blekkingarleik til að freista þess að tefja gagnsókn Úkraínuhers í austurhluta Donbas.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×