Innlent

Börnum sagt að redda sér sjálf eftir af­lýsingu flugs

Árni Sæberg skrifar
Mikill fjöldi fólks beið lengi í Leifsstöð í dag. Rétt er að taka fram að þetta eru ekki börnin sem um ræðir í fréttinni.
Mikill fjöldi fólks beið lengi í Leifsstöð í dag. Rétt er að taka fram að þetta eru ekki börnin sem um ræðir í fréttinni. Hallfríður Ólafsdóttir

Móðir tveggja barna sem áttu bókað flug með Icelandair í morgun segir farir fjölskyldunnar ekki sléttar. Krakkarnir vörðu fimm klukkustundum í flugrútu og komu svo að tómum kofanum hvað varðaði aðstoð í Keflavík.

Börn Fannýar Goupil Thiercelin, sautján ára stálp og fimmtán ára stelpa, ætluðu sér að fara til Frakklands að verja jólahátíðinni með stórfjölskyldu sinni. Fjölskyldan er búsett á Húsavík en krakkarnir höfðu fengið inni hjá vinkonu Fannýar í Reykjavík.

Þaðan tóku þau rútu eldsnemma í morgun með flugrútu Reykjavík Excursions. Rútuferðin lengdist allverulega og varð á endanum heilar fimm klukkustundir. Á meðan á rútuferðinni stóð barst tilkynning um að flugi krakkanna hefði verið aflýst, sem og flestra í rútunni. Þó voru um það bil fimm farþegar hverra flugi hafði ekki verið aflýst og því var ekki hægt að snúa rútunni við.

Þegar krakkarnir komu á Keflavíkurflugvöll vildu þeir ekkert heitar en að snúa við til höfuðborgarinnar. Þá hafði flugrútan hins vegar hætt að ganga.

Fengu 22 þúsund krónur og þurftu að redda sér sjálf

Þá var ekkert annað í stöðunni en að fá inni á hóteli. Það reyndist erfiðara en Fannýju hafði grunað enda reyndist enga hjálp að fá á flugvellinum þrátt fyrir að um væri að ræða börn án fylgdar. Eina hjálpin frá Icelandair var vilyrði fyrir 22 þúsund króna greiðslu fyrir hótelgistingu.

Fannýju tókst fyrir mikla mildi að bóka hótelgistingu fyrir börnin á Hótel Aurora sem er steinsnar frá Leifsstöð. Hefði hún ekki gert það hefðu börnin sennilega þurft að verja nóttinni í flugstöðinni enda ekki á bíl og ekkert far að fá.

„Það hlýtur að vera einhver sem hjálpar börnum í svona tilfelli,“ segir Fanný í samtali við Vísi.

Lítinn mat að fá

Auk greiðslu fyrir hótelgistingu hefur Icelandair einnig lofað börnunum sex þúsund krónum á haus fyrir mat á dag. Fanný segir hins vegar að það komi að litlum notum enda sé hvergi nokkurn mat að fá utan morgunverðar á hótelinu, sem er innifalinn.

„Hvað á ég að gera, láta börnin mín borða bara morgunmat?“ spyr Fanný og bætir við að henni finnist mjög óþægilegt að vera heima á Húsavík á meðan börnin hennar ganga í gegnum það sem hún kallar martröð.

Algjör óvissa ríkir

Þá segir Fanný að þau börnin óttist mikið að sagan endurtaki sig á morgun með tilheyrandi óvissu og óöryggi. Hún segist engar upplýsingar hafa fengið um framhaldið. „Það getur enginn gefið mér langtímaplan fyrir þessi börn sem eru ein á ferð,“ segir hún.

Hún furðar sig á því að betri áætlanir séu ekki í gildi þegar aflýsa þarf fjölda flugferða vegna veðurs og bendir á við búum á Íslandi og ættum að vera betur undirbúin.

Börnunum sagt að hypja sig

Fanný segir að börnunum hafi liðið ágætlega þegar á hótelið var komið allt þar til að símtal barst úr móttökunni þess efnis að þau þyrftu að rýma herbergið.

Fanný segir að fyrir misskilning hafi greiðsla hennar fyrir gistingunni ekki farið í gegn. „Í stað þess að hringja í mig hringdu þau í börnin og sögðu þeim að fara út,“ segir hún.

Þá gagnrýnir hún að ekki sé betra kerfi til staðar hjá Icelandair til þess að fólk þurfi ekki að leggja út fyrir hótelgistingu sem flugfélagið hyggst borga á endanum. Sér í lagi þegar um börn er að ræða.


Tengdar fréttir

Öllu millilandaflugi aflýst í dag og ferðaplön fjölmargra í uppnámi

Flugferðum frá Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst í dag vegna óveðursins sem nú geisar. Icelandair hefur þá einnig þurft að aflýsa innanlandsflugi í dag. Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir óveðrið skella á á versta tíma. Ferðaplön mörgþúsund Íslendinga séu í uppnámi nú rétt fyrir jól.

Flug­far­þegar megi eiga von á röskunum á­fram

Farþegar sem eiga flugmiða næstu daga mega eiga von á breytingum á ferðum, að sögn samskiptastjóra hjá Icelandair. Fólk sem er innlyksa í Leifsstöð hafi að mestu tekið ástandinu með jafnaðargeði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×