Sport

Harkan sex í NHL: Keyrði niður mótherja á ísnum eins og hann væri að spila í NFL

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ryan Reaves fékk að finna fyrir því frá leikmanni Detroit Red Wings sem var allt annað en ánægður með brotið á liðsfélaga sínum.
Ryan Reaves fékk að finna fyrir því frá leikmanni Detroit Red Wings sem var allt annað en ánægður með brotið á liðsfélaga sínum. AP/Andy Clayton-King

Íshokkímaðurinn Ryan Reaves var mikið í umræðunni eftir leik Minnesota Wild og Detroit Red Wings í NHL-atvinnumannadeildinni í íshokkí.

Reaves spilar með Minnesota Wild en ætti kannski frekar að spila með Minnesota Vikings eftir tæklingu sína í leiknum.

Reaves sýndi mikla hörku þegar hann keyrði niður Tékkann Filip Hronek sem spilar sem varnarmaður hjá Detroit Red Wings.

Ben Chiarot liðsfélagi Hronek var ekki hrifinn og tók upp hanskann fyrir félaga sinn sem fann vel fyrir högginu. Hronek yfirgaf ísinn eftir brotið og kom ekki meira við sögu í leiknum.

Hronek steinlá á ísnum og það voru ekki allir hrifnir að sjá svona grófan leik á ísnum.

Samfélagmiðlar voru uppfullir af rifrildi um hvort að þetta hafi verið ljótt brot eða hvort að Hronek hefði átt að fylgjast betur með.

Hér fyrir neðan má sjá þetta brot og fólk getur dæmt sjálft um hvort þetta var skítbragð eða bara eðlileg tækling.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×