Hlýjasti nóvember frá því mælingar hófust Samúel Karl Ólason skrifar 2. desember 2022 15:54 Mannlíf í Reykjavík í kulda Vísir/Vilhelm Nóvember var sá hlýjasti frá upphafi hitamælinga hér á landi. Meðalhitinn á landsvísu var þremur gráðum hlýrri en að meðallagi og sló naumlega gamla met nóvembermánaðar frá 1945.
Á vef Veðurstofu Íslands segir að nóvember hafi verið hlýr um allt land en ekki er gefið upp hver meðalhitinn á landsvísu var. Þegar leitast var eftir hitastigunu hjá veðurstofunni fengust ekki svör við því. Þar segir einnig að mánuðurinn hafi verið hlýjasti nóvember á mörgum veðurstöðvum eins og í Grímsey, á Teigarhorni og á Hveravöllum. Í Árnesi hafi meðalhiti í nóvember aðeins einu sinni verið jafn hár en það var árið 2014. Sá nóvembermánuður var einnig meðal þeirra hlýjustu frá upphafi mælinga. Meðalhiti mánaðarins í Reykjavík í nóvember var 5,1 gráður sem er 2,9 stigum yfir meðalhita áranna 1991 til 2020 og 2,6 gráðum yfir meðalhita síðasta áratugar. Hæsti hiti sem mælst hefur í Reykjavík er 12,7 gráður en síðasti mánuður var þriðji heitasti nóvember í Reykjavík frá því mælingar hófust. Á Akureyri var meðalhiti mánaðarins 3,5 gráðum yfir meðallagi 1991 til 2000 og 3,4 yfir síðasta áratug. Síðasti mánuður var sömuleiðis þriðji heitasti nóvembermánuður á Akureyri. Hæsti meðalhiti síðasta mánaðar mældist á Steinum undir Eyjafjöllum en hann var 7,3 gráður. Hæsti hitinn sem mældist var 16,3 gráður á Miðsitju í Skagafirði. Lægsti hitinn mældist -15,5 gráður í Svartárkoti.
Veður Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira